Tilnefningar vegna heimsleika Special Olympics í Chile 2027 eru að berast á skrifstofu ÍF
Bréf var sent aðildarfélögum ÍF og til svæðisstjóra ÍSÍ og UMFÍ en allir geta tilnefnt, séu aðilar að æfa og falla undir skilgreiningu Special Olympics.
Áður var skilgreining intellectual disability eða þroskahömlun en er í dag learning disability. Viðmið er því mun hærra en áður var og opnar dyr fyrir stærri hóp.
Tilnefningar taka mið af eftirfarandi;
- Hefur ekki tekið þátt í heimsleikum Special Olympics
- Hefur sýnt framfarir, mætt vel, sýnt áhuga á æfingum og er 15 ára eða eldri 24. okt 2027.
- Hefur sýnt íþróttamannslega framkomu og verið til fyrirmyndar félagslega.
- Er talin nógu heilsuhraust/ur til að taka þátt í mjög krefjandi verkefni erlendis
- Er sjálfbjarga/ taka þarf tillit til þess að skv. kvóta hefur 1 þjálfari umsjón með 4 keppendum
Ísland sendir keppendur í níu greinum; Áhalda og nútímafimleikum, badminton, boccia, borðtennis, frjalsum íþróttum, golfi, lyftingum og sundi.
Yfir 600 Íslendingar hafa tekið þátt í heimsleikum Special Olympics þar sem horft er til styrkleika hvers og eins og allir fá að blómstra.


Myndir frá heimsleikum Special Olympics í Berlín 2023
Nánari upplýsingar
Heimsleikar Special Olympics, Santiago, Chile 16. – 24. október 2027
22 íþróttagreinar, –
14 „unified“ greinar – (lið byggð á samstarfi fatlaðra og ófatlaðra)
6.000 keppendur
170 þátttökulönd
2.000 þjálfarar/aðstoðarfólk
Áætlað; 6.000 aðstandendur, 500.000 áhorfendur
Opnunarhátíð 16. október; Julio Martinez Estadio Nacional
Lokahátíð 24. október; Julio Martinez Estadio Nacional
Keppnisstaður; Julio Martinez Estadio Nacional
Áhaldafimleikar, boccia, badminton, frjálsar íþróttir, lyftingar, nútímafimleikar, sund
Keppnistaður; Centro de Entrenamiento Olimpico;
Borðtennis, körfubolti
Keppnistaður; Prince Wales Country Club Campo de Golf:
Golf
Annað;
Host Town program – 200 sveitarfélög taka þátt sem vinabæir
„Healthy Athletes“, Heilsufarsmælingar keppenda
LETR Enforcement Torch Run, alþjóðlegt kyndilhlaup lögreglu
Motor Activity Training Program. Sérverkefni fyrir þá sem eru með mjög skerta hreyfifærni.
YAP – Young athlete program. Kynning á verkefni fyrir ung börn
Upplýsingar; Santiago2027.org @SpecialOlympics #SpecialOlympics # Santiago
