Heim 1. tbl. 2026 Vel heppnuð vinnustofa

Vel heppnuð vinnustofa

3 min read
Slökkt á athugasemdum við Vel heppnuð vinnustofa
0
173

Helgina 17.-19. apríl stóð Íþróttasamband fatlaðra í samstarfi við Blaksamband Íslands fyrir þriggja daga vinnustofu á höfuðborgarsvæðinu þar sem inngilding, þjálfun og þróun blaks var í forgrunni. Vinnustofan fór fram með leiðsögn John Kessel, sem hefur víðtæka reynslu af þjálfun og þróunarstarfi á alþjóðavettvangi, meðal annars fyrir FIVB, USA Volleyball, NORCECA, World ParaVolley og Special Olympics.

Þátttakendur voru 21 talsins höfðu allir grunn í blaki en komu þó úr ólíkum áttum. Þjálfarar voru virkir og tóku þátt í umræðum og verklegum æfingum. Það sem stóð sérstaklega upp úr var hversu opnir þátttakendur voru fyrir því að sitjandi blak og unified blak geti átt eðlilegan og mikilvægan sess í íslensku blaki. Leiðbeinandanum tókst einstaklega vel að tengja fræðin við raunverulegar aðstæður þjálfara og gera efnið áhugavert og skiljanlegt.

Verklegi hlutinn gekk afar vel þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að prófa bæði sitjandi blak og unified blak. Stemningin var mjög góð og upplifðu þjálfarar flestir sitjandi blak í fyrsta skipti og var sú upplifun bæði krefjandi og skemmtileg. Í vinnustofunni var talað um mikilvægi þess að bjóða upp á fjölbreytt og aðgengilegt íþróttastarf hér a landi. Sérstaklega var fjallað um hvernig blak getur haft jákvæð áhrif á félagslega þátttöku og skapað vettvang þar sem allir geta tekið þátt á sínum forsendum.

Þátttakendur fengu bæði fræðilega og verklega innsýn í aðlögun æfinga, skipulag þjálfunar og uppbyggingu íþróttastarfs með það að markmiði að geta yfirfært þekkinguna beint í sitt starf.

Það verður því áhugavert að fylgjast með næstu skrefum innan blakhreyfingarinnar.

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Nýtt skref stigið hjá skautadeild Aspar: Unified Skautahlaup

Ollamót Aspar / Íslandsleikar Special Olympics í listhlaupi á skautum og skautahlaupi fóru…