Heim 1. tbl. 2026 Falin tækifæri á Andrésar andar leikunum

Falin tækifæri á Andrésar andar leikunum

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Falin tækifæri á Andrésar andar leikunum
0
224

Andrésar andar leikarnir fara fram næstu 22.-25. apríl og eru þeir eru fjölmennasta skíðamót landsins, þar einstök stemning þar sem allir fá að njóta sín óháð getu eða reynslu. Á mótinu er sérstakur stjörnuflokkur þar sem fötluðum iðkendum gefst kostur á að taka þátt á sínum forsendum.

Í ár taka fimm keppendur þátt í stjörnuflokknum, þar er ein stúlka í skíðagöngu en aðrir í alpagreinum. „Fjöldinn hefur verið svipaður undanfarin ár en áherslan hefur alltaf verið sú sama: að skapa umhverfi þar sem allir geta tekið þátt og upplifað gleði í gegnum íþróttir“ segir einn af skipuleggjendum leikanna.

Til upplýsinga þá er tekið mið af hæfni hvers og eins við skráningu og keppendur fá að spreyta sig í brautum sem henta þeim best, ýmist með aðstoð eða sjálfstætt. Þannig er tryggt að upplifun hvers barns sé jákvæð og í takt við þeirra styrkleika. Andrésar Andar leikarnir einkennast af því að leikgleðin er í forgrunni fremur en keppnin sjálf. Þar eru öll börn velkomin og fá að njóta sín í öryggu og hvetjandi umhverfi.

Einn af hápunktum mótsins er verðlaunaafhendingin í Íþróttahöllinni en þar fær stjörnuflokkurinn sérstaka viðurkenningu fyrir þátttöku og þrautsegju. Það er því mikil samheldni sem birtist í stjörnuflokknum á hverju ári og verður frábært að fylgjast með þeim næstu helgi.  

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Nýtt skref stigið hjá skautadeild Aspar: Unified Skautahlaup

Ollamót Aspar / Íslandsleikar Special Olympics í listhlaupi á skautum og skautahlaupi fóru…