Heim 1. tbl. 2026 Íslandsmót ÍF í sveitakeppni í Boccia sett í Vestmannaeyjum

Íslandsmót ÍF í sveitakeppni í Boccia sett í Vestmannaeyjum

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Íslandsmót ÍF í sveitakeppni í Boccia sett í Vestmannaeyjum
0
381

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sveitakeppni í boccia var sett í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í morgun. Um 35 sveitir frá níu félögum eru mættar til leiks, en það er Íþróttafélagið Ægir sem er framkvæmdaraðili mótsins.

Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdarstjóri Herjólfs, bauð gesti velkomna við setningarathöfnina. Mikið fjör var á setningunni þegar lið keppenda voru kynnt inn með ljósasýningu. Ólafur kynnti einnig lag mótsins sem verður spilað yfir helgina, og fararstjórar liða voru dregnir fram á völlinn þar sem þeir tóku þátt í leikjum, keppendum til mikillar skemmtunar.

Í dag, laugardag, og á morgun, sunnudag, verður keppt til úrslita í deildum, rennuflokki og í flokki BC1–BC4, þannig að tveir Íslandsmeistarar verða krýndir um helgina.

Lokahóf mótsins fer fram í Höllinni á sunnudagskvöld, og lofað er miklu stuði og góðri stemningu.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Fyrsti fundur Íþróttamannanefndar ÍF

Fimmtudaginn 4. júní var haldinn fyrsti formlegi fundur íþróttamannanefndar ÍF. Á fundinum…