Heim 1. tbl. 2026 Vorráðstefna um þátttöku fatlaðra barna á næsta leyti

Vorráðstefna um þátttöku fatlaðra barna á næsta leyti

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Vorráðstefna um þátttöku fatlaðra barna á næsta leyti
0
179

Vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar verður haldin dagana 7. og 8. maí 2026 í samstarfi við Gló Æfingastöð en ráðstefnan er einn stærsti vettvangur hér á landi fyrir þau sem starfa með fötluðum börnum.

Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru:

  • Snæfríður Þóra Egilson, prófessor í fötlunarfræði við Háskóla Íslands
  • Rachel Teplicky, Business and Engagement Officer, Occupational Therapist at CanChild Centre for Childhood-Onset Disability Research, McMaster University
  • Peter Rosenbaum, Professor of Paediatrics, McMaster University, Co-Founder, CanChild Centre for Childhood-Onset Disability Research

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er „Sköpum tækifæri – Þátttaka og framtíð fatlaðra barna“. Verður þar sjónum beint að því hvernig samfélagið, viðhorf og skipulag þjónustu hefur áhrif á möguleika fatlaðra barna og ungmenna til þátttöku í daglegu lífi. Markmið ráðstefnunnar er að efla þekkingu og umræðu um þátttöku fatlaðra barna og styðja við þróun hagnýtra lausna sem skapa raunveruleg tækifæri til þátttöku.

Hægt er að lesa meira um ráðstefnuna hér

Facebook viðburðarsíðu ráðstefnunnar má finna hér

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Nýtt skref stigið hjá skautadeild Aspar: Unified Skautahlaup

Ollamót Aspar / Íslandsleikar Special Olympics í listhlaupi á skautum og skautahlaupi fóru…