Heim 2. tbl. 2024 Nýárssundmót ÍF fer fram laugardaginn 4. janúar 2025

Nýárssundmót ÍF fer fram laugardaginn 4. janúar 2025

6 min read
Slökkt á athugasemdum við Nýárssundmót ÍF fer fram laugardaginn 4. janúar 2025
0
335

Nýárssundmót ÍF 2025 er með breyttu sniði árið 2025 og öllum boðin þátttaka óháð aldri. Keppt verður í hópi 17 ára og yngri en 18 ára og eldri er einnig boðin þátttaka í mótinu. Keppt verður í Laugardalslaug þar sem upphitun hefst kl. 14.00 og keppni kl. 15.00.

Keppt er í eftirtöldum greinum:

50 m baksund                                  50 m bringusund

50 m flugsund                                  50 m frjáls aðferð

25 m frjáls aðferð*

*25 m frjáls aðferð er fyrir byrjendur þar eru hjálpartæki leyfð, þ.e. armkútar, sundfit o.s.frv.  Einungis þeir sem ekki keppa í öðrum greinum mótsins hafa rétt til þátttöku.

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

            1. grein 50 m baksund kk                           2. grein 50 m baksund kvk

            3. grein 50 m bringusund kk                      4. grein  50 m bringusund kvk

            5. grein  25 m frjáls aðferð kk                    6. grein  25 m frjáls aðferð kvk

            7. grein  50 m frjáls aðferð kk                    8. grein  50 m frjáls aðferð kvk

            9. grein  50 m flugsund kk                       10. grein  50 m flugsund kvk

Verðlaun

Í mótslok fá allir þátttakendur viðurkenningu (þátttökupening).

Í 50 metra greinum eru veitt verðlaun gull, silfur og brons samkvæmt stigaútreikningi miðað við stigaformúlu ÍF í flokkum S1-S18, með tvennum hætti. Annars vegar eru veitt verðlaun í unglingaflokki (þ.e. 17 ára og yngri) fyrir fyrstu þrjú sætin í hverri grein  og hins vegar eru veitt verðlaun í opnum flokki karla og kvenna fyrir fyrstu þrjú sætin í hverri grein á mótinu sem er þá fyrir 18 ára og eldri keppendur.

Sjómannabikarinn er veittur fyrir besta sundafrek mótsins hjá 17 ára og yngri keppendum samkvæmt stigaútreikningi miðað við stigaformúlu ÍF.

Skráningum skal skilað til gunnar.valur.gunnarsson@gmail.com fyrir 18. desember 2024 með cc á if@ifsport.is (Skráningargögn verða send út til aðildarfélaga innan tíðar en einnig er hægt að óska eftir þeim á if@ifsport.is )

ATH: Öllum er frjálst að skrá sig til þátttöku óháð getu eða aldri. Allir velkomnir, byrjendur jafnt sem lengra komnir.

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 2. tbl. 2024
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Helgi Þór hlaut Hvataverðlaun ÍF 2024

Helgi Þór Gunnarsson formaður borðtennisnefndar ÍF hlýtur Hvataverðlaunin 2024. Verðlaunin…