Spjótkastarinn Helgi Sveinsson landaði draumakastinu á Ítalíu í maímánuði 2017. Þá kastaði Helgi spjótinu 59,77 metra sem var staðfest heimsmet í hans flokki, F42. Skömmu síðar varð nafnabreyting á keppnisflokki Helga þar sem F42 varð að F63 og stendur metið enn í dag í flokki F63. Metið féll á opna ítalska meistaramótinu sem fram fór í Rieti og er sjöunda …