Heim 1. tbl. 2026 Fyrsta íþróttamannanefnd ÍF stofnuð

Fyrsta íþróttamannanefnd ÍF stofnuð

5 min read
Slökkt á athugasemdum við Fyrsta íþróttamannanefnd ÍF stofnuð
0
190

Það eru án efa spennandi tímar framundan en Íþróttasamband fatlaðra hefur ákveðið að setja á fót íþróttamannanefnd. Markmið nefndarinnar er að efla samskipti og samráð ásamt því að vera brú milli íþróttafólks og ÍF.

Íþróttamannanefndin stuðlar að virkum samskiptum þar sem raddir íþróttafólks eru mótaðar, ræddar og miðlað áfram til stjórnar og starfsfólks sambandsins. Á sama tíma tryggir nefndin að upplýsingar og ákvarðanir frá ÍF berist til íþróttafólks með skýrum og aðgengilegum hætti. Með þessu er leitast við að auka traust, bæta upplýsingaflæði og auka þátttöku íþróttafólks í þróun íþróttastarfsins.

Fyrst um sinn var það stjórn og starfsfólk ÍF sem skipaði í nefndina en í framhaldi mun íþróttamannanefndin móta verklag um tilnefningar, kosningar og starfshætti til framtíðar. Nefndin samanstendur af öflugu og fjölbreyttu íþróttafólki sem hefur víðtæka reynslu úr ólíkum íþróttagreinum.

Þeir fyrstu sem sitja í íþróttamannanefnd ÍF eru

Arna Sigríður Albertsdóttir
Arna er fyrsta íslenska konan til að keppa bæði á sumar- og vetrar Paralympics. Arna hefur áður keppt í handahjólreiðum en hefur á síðustu árum lagt áherslu á skíðagöngu. Sagan hennar einkennist af mikilli seiglu og hefur hún náð að byggja upp afreksferil í tveimur krefjandi íþróttagreinum.

Hákon Atli Bjarkason
Hákon er fremsti borðtennisspilari landsins í hjólastólaflokki, hann er margfaldur Íslandsmeistari og öflugur þjálfari. Hann hefur byggt upp ört vaxandi starf fyrir hreyfihamlaða iðkendur og lagt mikið af mörkum til íþrótta hreyfihamlaðra hér á landi, samhliða því stefnir hann sjálfur á þátttöku á Paralympics í LA 2028.

Hilmar Snær Örvarsson
Hilmar er fyrrum einn fremsti para-skíðamaður heims og keppti á vetrar Paralympics 2018 og 20222, hann keppti í alpagreinunum svigi og stórsvigi með góðum árangri á leikunum tveimur. Eftir farsælan feril á skíðum hefur hann fært sig yfir í golfið, þar sem hann stefnir á frekari árangur á alþjóðlegum vettvangi.

Hulda Sigurjónsdóttir
Hulda er margfaldur Íslandsmeistari í kúluvarpi og sleggjukasti ásamt því hefur hún byggt upp gott starf sem þjálfari. Hún vinnur markvisst að því að efla þátttöku ungs íþróttafólks og hefur skýra sýn á mikilvægi þess að skapa tækifæri fyrir næstu kynslóð. Hulda keppir sjálf á alþjóðlegum vettvangi í frjálsum íþróttum og kraftlyftingum.

Ingeborg Eide Garðarsdóttir
Ingeborg er íþróttakona ÍF 2025 og ein af fremstu kúluvarpskonum heims í flokki F37. Ingeborg kastaði í fyrsta sinn yfir tíu metra á síðasta heimsmeistaramóti og bætti þar eigið Íslandsmet. Ingeborg hefur náð verðlaunasætum á Grand Prix mótum erlendis og er í dag meðal tíu bestu kastara heims í sínum flokki.

________________________________________________________________________________________________________________

Hægt er að hafa samband við íþróttamannanefnd ÍF með því að senda tölvupóst á parasportisland@gmail.com

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

VISTA ráðstefna IPC í streymi

IPC mun halda VISTA ráðstefnuna í gegnum streymi dagana 18.-29 maí 2026. Þetta verður í tó…