Sonja Sigurðardóttir keppir í undanrásum í 50m baksundi á Paralympics í dag kl 08:23 á íslenskum tíma (10:23 frönskum tíma).
Æfingar hafa gengið vel seinustu daga þrátt fyrir kvefepest sem hún fékk í byrjun ferðarinnar. Eins og hún seigir við Rúv: “ Ég ætla bara að synda eins hratt og ég get, bakkinn kemur ekki til mín.” Sonja hefur það að markmiði að vera meðal átta efstu og komast í úrslit sem hefjast þá kl 16:05 á íslenskum tíma (18:05 á frönskum tíma).
Sonja keppir einnig á morgunn, 3 september, í 100m skriðsundi kl 08:51 á íslenskum tíma (10:51 á frönskum tíma).