
Sambandsþing Íþróttasambands fatlaðra fór fram í Laugardalshöll laugardaginn 26 apríl síðastliðinn. Á þinginu var Þórður Árni Hjaltested endurkjörinn formaður ÍF til næstu tveggja ára. Auk Þórðar var ný stjórn kjörin og tók Theodór Karlsson sæti í varastjórn í fyrsta sinn.
Þór Jónsson lét af stjórnarstörfum við þingið eftir farsælt og ómetanlegt starf í þágu íþrótta fatlaðra. ÍF þakkar Þór innilega fyrir hans framlag.
Ný stjórn ÍF er eftirfarandi:
Formaður: Þórður Árni Hjaltested
Varaformaður: Jóhann Arnarsson
Meðstjórnendur: Halldór Sævar Guðbergsson, Linda K. Kristinsdóttir og Geir Sverrisson
Varastjórn: Eva Hrund Gunnarsdóttir, Ásta Katrín Helgadóttir og Theodór Karlsson
Á þinginu var einnig afhent fjöldi viðurkenninga. Það voru þau Helgi Þór Gunnarsson landsliðsþjálfari ÍF í borðtennis og Ásta Katrín Helgadóttir stjórnarkona hjá ÍF sem hlutu gullmerki ÍSÍ við þingið en Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ og Hafsteinn Pálsson meðstjórnandi í framkvæmdastjórn ÍSÍ sæmdu þau Ástu og Helga gullmerkjunum.
Þá var Jón Heiðar Jónsson formaður Íþróttafélagsins Akur viðstaddur þingið og sæmdi hann þar tvo gullmerki Akurs en það voru þau Þórður Árni Hjaltested formaður ÍF og Anna Karólína Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri Special Olympics og þróunarsviðs ÍF sem hlutu gullmerkin.
Þingið samþykkti nýja afreksstefnu ÍF fyrir tímabilið 2024-2032, reglugerð um skiptingu lottótekna og fjárhagsáætlun næstu ára. Samþykkt var að breyta styrkveitingum þannig að sérstök áhersla verður lögð á mótahald í aðildarfélögum.
Að lokum þakkaði Þórður þinggestum fyrir frábært samstarf og góðar umræður. Framundan eru spennandi verkefni á alþjóðavettvangi, þar á meðal Norðurlandamótið í boccia sem haldið verður á Íslandi 16-18 maí.
Á facebooksíðu ÍF má nálgast svipmyndir frá þinginu.
Mynd með frétt/ Frá vinstri Hafsteinn Pálsson, Ásta Katrín Helgadóttir, Helgi Þór Gunnarsson og Andri Stefánsson en Ásta og Helgi hlutu gullmerki ÍSÍ við þingið.