Heim 1. tbl. 2025 Kvenfélagið Hvöt styrkir Vestri – Special Olympics

Kvenfélagið Hvöt styrkir Vestri – Special Olympics

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Kvenfélagið Hvöt styrkir Vestri – Special Olympics
0
114

Það er ánægjulegt að greina frá því að kvenfélagið Hvöt í Hnífsdal hefur ákveðið að styrkja verkefni á vegum körfuknattleiksdeildar Vestra, Vestri – Special Olympics.

Þetta verkefni hefur verið hluti af Allir með sem ÍF stendur fyrir en Þórir Guðmundsson, formaður barna- og unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Vestra kynnti starfið sem fer fram innan Special Olympics hóps Vestra á fundi kvenfélagsins. Greindi hann frá mikilvægi skipulagðs íþróttastarfs fyrir börn með þroskaskerðingu og/eða fötlun og framtíðarsýn að stækka hópinn og gera þátttökuna gjaldfrjálsa.

Kvenfélagið Hvöt lagði til að styrkja verkefnið um 650.000kr og eru orðnir hollvinir verkefnisins. ÍF fagnar þessum nýja bakhjarli og sendir bæði kvenfélaginu Hvöt og körfuknattleiksdeild Vestra hamingjuóskir og þakkir fyrir framtakið.

Mynd sótt frá bb.is

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2025
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Íþróttanámskeið fyrir hreyfihömluð börn og ungmenni í sumar

Allir með, Æfingastöðin og ÍR munu standa fyrir skemmtilegu íþróttanámskeiði í sumar fyrir…