Heim 1. tbl. 2026 Mía mikilvægur stuðningur fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra

Mía mikilvægur stuðningur fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra

4 min read
Slökkt á athugasemdum við Mía mikilvægur stuðningur fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra
2
187

Bækurnar um Míu hafa á undanförnum árum orðið mikilvægur stuðningsvettvangur fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra. Að baki verkefninu stendur Þórunn Eva G. Pálsdóttir sem hefur lagt mikla áherslu á að bæta fræðslu, stuðning og utanumhald fyrir börn sem glíma við langvinn veikindi og fjölskyldur sem standa þeim næst.

Skrifaði eftir að hafa sjálf upplifað hvernig það er að eiga barn með lyfjabrunn

Bókin varð upphaflega til sem lokaverkefni í sjúkraliðanámi hennar árið 2019 en markmið bókarinnar er að hjálpa börnum og foreldrum að skilja betur hvað lyfjabrunnur er, hvað tekur við í ferlinu og hvernig hægt er að undirbúa sig fyrir komandi verkefni á jákvæðan og aðgengilegan hátt.

Bækurnar sem núna eru orðnar þrjár hafa reynst mikilvæg viðbót við þá fræðslu sem fjölskyldur fá innan heilbrigðiskerfisins en fyrir mörg börn er mikilvægt að geta lesið, skoðað myndir og séð að fleiri börn eru í svipuðum aðstæðum.

Míuboxin gleðja í erfiðum aðstæðum

Undir merkjum Míu hafa einnig verið búin til svokölluð Míubox, sem eru sérsniðin gjafabox fyrir langveik börn og foreldra þeirra. Hvert box er sett saman út frá einstaklingnum sem fær það afhent og inniheldur boxið ýmislegt sem ætlað er að gleðja, styðja og létta undir í erfiðum aðstæðum. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að muna einnig eftir foreldrum langveikra barna sem gleymast oft í annríki og álagi daglegs lífs.

Verkefnið hefur frá upphafi verið byggt upp af mikilli hugsjón og sjálfboðavinnu, með stuðningi fyrirtækja og einstaklinga sem vilja leggja sitt af mörkum. Þá hafa Míuverðlaunin einnig vakið athygli en þar er ætlað að heiðra heilbrigðisstarfsfólk og aðra sem hafa sýnt langveikum börnum og fjölskyldum þeirra einstakan stuðning. Þórunn Eva hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín í þágu langveikra barna og fjölskyldna þeirra.

Hægt er að lesa meira um Mía Magic verkefnið á heimasíðu þeirra

Myndir fengnar af heimasíðu Mía Magic

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

VISTA ráðstefna IPC í streymi

IPC mun halda VISTA ráðstefnuna í gegnum streymi dagana 18.-29 maí 2026. Þetta verður í tó…