
Í fyrsta sinn í sögunni verður frame running hluti af keppnisgreinum á Paralympics í Los Angeles 2028. Greinin hefur vakið töluverða athygli á undanförnum árum og kom fyrst fram á HM í frjálsum 2019 og síðan aftur 2023.
Frame running er íþróttagrein fyrir börn, ungmenni og fullorðna sem þurfa hjálpartæki til þess að hlaupa. Keppt er á sérstöku þríhjóli þar sem íþróttafólk situr á hnakk, styður sig við grind á meðan það hleypur og stýrir hjólinu með höndum og/eða handleggjum.
Frame running er hluti af frjálsum íþróttum og hefur íþróttin reynst árangursrík til að efla styrk og vellíðan. Ákvörðunin að bæta frame running við LA28 er stór áfangi og fögnum við þessari viðbót.