Heim 1. tbl. 2026 Fjörður Íslandsmeistari félagsliða í frjálsum innanhúss 2026

Fjörður Íslandsmeistari félagsliða í frjálsum innanhúss 2026

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Fjörður Íslandsmeistari félagsliða í frjálsum innanhúss 2026
0
163

Íslandsmót ÍF í frjálsum innanhúss fór fram um helgina, 28. febrúar – 1. mars. Mikil stemning var í laugardalshöllinni þar sem allt okkar fremsta frjálsíþróttafólk var mætt til leiks.

Fjörður varð Íslandsmeistari félagsliða eftir sterka frammistöðu sinna keppenda. Margir áttu eftirminnilegt mót þar á meðal hann Daníel Smári Hafþórsson sem sigraði í öllum sínum greinum þar sem hann setti persónulegt met í 5 af þeim 6 greinum sem hann tók þátt í. Þar stóð upp úr árangur hans í langstökki þar sem hann stökk 5,25 m.

Stefanía Daney Guðmundsdóttir átti gott mót. Stefanía var eini keppandi mótsins sem keppti bæði á Meistaramóti Íslands hjá FRÍ og Íslandsmóti ÍF. Hún varð Íslandsmeistari í 60m hlaupi og langstökki á mótshluta ÍF ásamt því að sýna góðan árangur á mótshluta FRÍ þar sem hún meðal annars endaði í 5 sæti af 16 keppendum í langstökki þar sem hún stökk 5,11 m.

4 keppendur mætti til leiks að keppa í nýjum kaststól í kúluvarpi. Þetta er í fyrsta sinn á Íslandi þar sem keppt er löglega í kúluvarpi fyrir sitjandi flokka. Í flokki F55-57 sigraði Valdimar Númi Hjaltason með 6.95m og í flokki F34 sigraði Sigurjón Ægir Ólafsson með 3.44m

Úrslit mótsins má finna hér

ÍF óskar keppendum og Firði til hamingju með árangurinn

Myndir eftir Magnús Orra Arnarsson

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Sögulegt kúluvarp á ÍM um helgina

Það verður sannkölluð frjálsíþróttaveisla um helgina þar sem Íslandsmót ÍF og Meistaramót …