Heim 1. tbl. 2026 23 íslenskir keppendur stefna á heimsleika Special Olympics 2027

23 íslenskir keppendur stefna á heimsleika Special Olympics 2027

6 min read
Slökkt á athugasemdum við 23 íslenskir keppendur stefna á heimsleika Special Olympics 2027
0
718

Nú er staðfest hvaða keppendur fara á næstu heimsleika Special Olympics sem fara fram í Santiago, Chile 16. – 24. október 2027. Special Olympics á Íslandi fær kvóta í ákveðnum greinum og óskað er tilnefninga. Árangur er ekki mælikvarði við val á heimsleika Special Olympics og leikarnir byggja því á allt öðru keppnisformi en Paralympics eða Ólympíumóti fatlaðra. Skipt er í styrkleikaflokka og allir fá verðlaunapeninga eða verðlaunaborða.

Special Olympics á Íslandi setur fram ákveðin viðmið vegna tilnefninga:

  • Hefur ekki tekið þátt í heimsleikum Special Olympics (m.t.t. árafjölda og kvóta)
  • Hefur sýnt framfarir, mætt vel, sýnt áhuga á æfingum og er 15 ára eða eldri 16. október 2027.
  • Hefur sýnt íþróttamannslega framkomu og verið til fyrirmyndar félagslega.
  • Er talin nógu heilsuhraust/ur til að taka þátt í mjög krefjandi verkefni erlendis
  • Er sjálfbjarga/ taka þarf tillit til þess að einn þjálfari hefur umsjón með fjórum keppendum

23 keppendur frá níu íþróttafélögum og þremur golfklúbbum taka þátt í 8 íþróttagreinum: Áhaldafimleikum, badminton, boccia, frjálsum íþróttum, golfi, lyftingum, nútímafimleikum og sundi. Keppendur koma frá Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Flúðum, Selfossi, Vestmannaeyjum, Stykkishólmi og Akureyri.

Eftirtalin íþróttafélög / klúbbar eiga fulltrúa á heimsleikum Special Olympics 2027

NES, Reykjanesbæ

  • Jóel Máni Elorm Þórisson, badminton
  • Lena Kristín Hermannsdóttir, boccia

Ármann, Reykjavík

  • Sigríður Sigurjónsdóttir, lyftingar
  • Anna Karen Jafetsdóttir, frjálsar íþróttir
  • Kristján Jónsson, frjálsar íþróttir

Badmintonfélag Hafnarfjarðar

  • Dalrós Líf Ólafsdóttir

Fjörður, Hafnarfirði

  • Sigurður Reynir Ármannsson, lyftingar
  • Elsa Sigvaldadóttir, frjálsar íþróttir
  • Daníel Smári Hafþórsson, frjálsar íþróttir
  • Kristrún Helga Þórðardóttir, sund
  • Frosti Magnússon, sund

Ösp, Reykjavík

  • Ýmir Snær Bang Hlynsson, sund
  • Nína Margrét Ingimarsdóttir, nútímafimleikar
  • María Gísladóttir, nútímafimleikar

Gerpla, Kópavogi

  • Katrin Ling Yu Þórbergsdóttir, áhaldafimleikar
  • Hilmir Sveinsson, áhaldafimleikar
  • Viktor Skúli Þórarinsson, áhaldafimleikar

Óðinn Akureyri

  • Kristín Erna Jakobsdóttir, sund

Suðri Selfossi / golfklúbburinn Flúðum

  • Matthías Máni Elíasson, lyftingar
  • Telma Þöll Þorbjörnsdóttir, golf

Golfklúbbur Akureyrar / EIK

  • Elías Eyþór Þórarinsson, golf

Golfklúbburinn Mostri, Stykkishólmi

  • Einar Marteinn Bergþórsson, golf

Ægir, Vestmannaeyjum

  • Birgir Reimar Rafnsson, boccia

Upplýsingar um leikana

  • 6.000 keppendur
  • 170 þátttökulönd
  • 2.000 þjálfarar/aðstoðarfólk
  • Áætlað; 6.000 aðstandendur, 500.000 áhorfendur
  • Opnunarhátíð 16. október; Julio Martinez Estadio Nacional
  • Lokahátíð 24. október; Julio Martinez Estadio Nacional
  • Keppnisstaður; Julio Martinez Estadio Nacional
  • Áhaldafimleikar, boccia, badminton, frjálsar íþróttir, lyftingar, nútímafimleikar, sund
  • Keppnistaður; Prince Wales Country Club Campo de Golf:
  • Golf, level 4 og 5

Annað;

Host Town program – 200 sveitarfélög taka þátt sem vinabæir þátttökulanda fyrir leikana

„Healthy Athletes“, Heilsufarsmælingar keppenda. Alþjóðlegt lið heilbrigðisstarfsfólks

LETR Enforcement Torch Run. Alþjóðlegt kyndilhlaup lögreglu

Motor Activity Training Program. Fyrir þá sem eru með mjög skerta hreyfifærni.

YAP – Young athlete program. Kynning á hreyfiþjálfun fyrir ung börn

Heimasíða leikanna 2027 Heimasíða SOI https://www.santiago2027.org/en https://www.specialolympics.org/

Magnús Orri Arnarson mun vinna heimildarmynd um undirbúning og þátttöku Íslands á leikunum 2027. Hann gerði heimildarmynd um heimsleika Special Olympics í vetraríþróttum sem fóru fram á Ítalíu 2025. Myndin var sýnd í bíó Paradís og á RUV undir heitinu „Sigur fyrir sjálfsmyndina“

Heimildarmyndin 2027 er kynnt undir sama heiti, „Sigur fyrir sjálfsmyndina“ hluti II.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Keilukast í fyrsta sinn á Íslandi

Sunnudaginn 14. júní hélt Fjörður Kastmót í frábæru veðri á frjálsíþróttavellinum í Kaplak…