Heim 1. tbl. 2026 Fyrsti fundur Íþróttamannanefndar ÍF

Fyrsti fundur Íþróttamannanefndar ÍF

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Fyrsti fundur Íþróttamannanefndar ÍF
0
126

Fimmtudaginn 4. júní var haldinn fyrsti formlegi fundur íþróttamannanefndar ÍF. Á fundinum voru nefndarmeðlimir kynntir til leiks og kosnir til hlutverka innan nefndarinnar.

Skipan nefndarinnar:

  • Formaður: Arna Sigríður Albertsdóttir
  • Varaformaður: Ingeborg Eide Garðarsdóttir
  • Nefndarmeðlimir: Hákon Atli Bjarkason, Hulda Sigurjónsdóttir og Hilmar Snær Örvarsson

Markmið nefndarinnar er að efla samskipti og samráð og vera brú milli íþróttafólks og ÍF. Íþróttamannanefndin mun vinna að því að raddir íþróttafólks verði mótaðar, ræddar og miðlaðar til stjórnar og starfsfólks sambandsins, auk þess að tryggja að upplýsingar og ákvarðanir frá ÍF berist til íþróttafólks með skýrum og aðgengilegum hætti. Með þessu er stefnt að auknu trausti, bættri upplýsingagjöf og aukinni þátttöku íþróttafólks í þróun íþróttastarfsins.

Hafið samband við íþróttamannanefnd ÍF með tölvupósti: parasportisland@gmail.com.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum fer fram 6. júní

Laugardaginn 6. júní fer fram Íslandsmeistaramótið í Kraftlyftingum. Mótið mun fara fram í…