Ollamót Aspar / Íslandsleikar Special Olympics í listhlaupi á skautum og skautahlaupi fóru fram í Egilshöll í 31. maí. Umsjón með viðburðinum hafði skautadeild Aspar.
Skautadeild Aspar sem hefur staðið fyrir æfingum á keppni á listhlaupi á skautum undanfarin ár hefur nú stigið ný skref og skautahlaup er að verða þar vinsæl grein. Nú var stigið enn eitt skref og efnt til keppni í skautahlaupi þar sem fatlaðir og ófatlaðir kepptu saman. Innan Special Olympics samtakanna er það orðið vinsælt keppnisform undir heitinu „unified“.
Það voru frábærir liðsmenn sem mættu til leiks með keppendum Aspar en þar mættu fulltrúar lögreglu, landhelgisgæslu og sjúkraflutningamanna.
Gríðarleg framþróun er hjá ungum iðkendum hjá skautadeild Aspar og þeir eldri ná sífellt meiri árangri í þeim verkefnum sem sett eru fyrir. Allir fá verkefni við hæfi og viðurkenningar þegar markmiðum er náð.Skautahlaupið er spennandi viðbót í flóru Skautadeildar Aspar og „unified“ skautahlaup býður upp á mikla möguleika í framtíðinni.
Til hamingju með glæsilegt mót og mikilvægt starf, skautadeild Aspar
Myndir frá Íslandsleikunum tók hann Magnús Orri Arnarson og má finna þær hér
Einnig bjó hann til stórskemmtilegt myndband sem má sjá á Facebook síðu Special Olympics Iceland
Frétt/ Anna Karólína Vilhjálmsdóttir
