Heim 1. tbl. 2026 VISTA ráðstefna IPC í streymi

VISTA ráðstefna IPC í streymi

2 min read
Slökkt á athugasemdum við VISTA ráðstefna IPC í streymi
0
139

IPC mun halda VISTA ráðstefnuna í gegnum streymi dagana 18.-29 maí 2026. Þetta verður í tólfta sinn sem ráðstefnan er haldin en hún var fyrst sett árið 1993 og hefur frá upphafi verið einn mikilvægasti vettvangur heims fyrir miðlun þekkingar, rannsókna og samstarfs tengt íþróttum para-íþróttafólks.

VISTA ráðstefnan sameinar fræðasamfélagið, þjálfara, sérfræðinga, skipuleggjenda og aðila innan Paralympic hreyfingarinnar með það að markmiði að efla skilning og þróun para-íþróttafólks á alþjóðavísu. Á ráðstefnunni verða sex tveggja tíma þemalotur undir stjórn viðurkenndra sérfræðinga á sínu sviði. Þar að auki verða kynningar og veggspjöld aðgengileg fyrir VISTA samfélagið í upptökuformi.

Ráðstefnan átti upphaflega að fara fram í desember 2025 en verður nú haldin í streymi í beinni útsendingu og með aðgengilegu upptökuefni til að auka þátttöku frá fólki um allan heim.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á heimasíðu IPC
Hægt er að skrá sig beint á ráðstefnuna hér og er hún ókeypis.

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Mía mikilvægur stuðningur fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra

Bækurnar um Míu hafa á undanförnum árum orðið mikilvægur stuðningsvettvangur fyrir langvei…