Heim 1. tbl. 2026 Vel heppnaðir Íslandsleikar þrátt fyrir veðuráskoranir

Vel heppnaðir Íslandsleikar þrátt fyrir veðuráskoranir

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Vel heppnaðir Íslandsleikar þrátt fyrir veðuráskoranir
0
96

Íslandsleikarnir í boltaíþróttum fóru fram í Reykjanesbæ síðastliðna helgi, 28. og 29. mars. Þetta er í þriðja sinn sem leikarnir eru haldnir en áður hafa þeir farið fram á Akureyri og Selfossi.

Keppt var í þremur greinum, handbolta, körfubolta og fótbolta. Þátttakendur voru rúmlega 50 talsins og tóku flestir þeirra þátt í öllum þremur greinunum. Meðal keppenda voru einnig ófatlaðir þátttakendur sem komu frá Keflavík ungmenna og íþróttafélagi.

Í fyrsta sinn tóku tvö Special Olympics lið þátt í leikunum en þar mættust Haukar og nýliðar úr Njarðvík í æsispennandi leik sem vakti mikla athygli og gleði meðal áhorfenda.

Veðrið setti þó strik í reikninginn eins og svo oft áður. Á laugardeginum riðlaðist dagskrá töluvert og þurfti að aflýsa sundlaugarpartýinu og kvöldvöku sem fyrirhuguð var um kvöldið. Þrátt fyrir það hafði veðrið lítil áhrif á heildarupplifun þátttakenda.  

Þátttakendur og aðrir sem komu að leikunum fóru glöð heim eftir viðburðaríka og skemmtilega helgi. „Við viljum senda sérstakar þakkir til allra þeirra sem komu að undirbúningi og aðstoð við að gera þessa helgi frábæra upplifun fyrir okkur öll“ segir Valdimar Gunnarsson, verkefnastjóri Allir með að lokum.

Myndir frá helginni má finna á Facebook síðu ÍF hér

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Arna Sigríður hefur lokið keppni á vetrar Paralympics

Arna Sigríður Albertsdóttir lauk keppni sinni á vetrar Paralympics 11. mars þar sem hún ke…