Arna Sigríður Albertsdóttir lauk keppni sinni á vetrar Paralympics 11. mars þar sem hún keppti í skíðagöngu. Arna tók þátt í tveimur greinum á leikunum, sprettgöngu og 10km göngu.
Í sprettinum, sem var fyrsta grein Örnu á mótinu, endaði hún í 19. sæti en 12 hröðustu tímarnir í undankeppninni komust áfram í undanúrslit. Daginn eftir keppti Arna í 10km skíðagöngu. Á krefjandi kafla missti hún jafnvægið, datt og brotnaði annað skíðið hennar þegar hún lenti á grindverki. Þurfti því að skipta um skíði sem þjálfari frá Kanada lánaði henni svo hún gæti haldið áfram. Það skíði var töluvert lengra en hennar eigið, eftir smá tíma gat hún svo skipt á sitt eigið. Þrátt fyrir mótlætið hélt Arna áfram og kláraði keppnina á tímanum 40:01,08 og endaði í 19. sæti. Gullverðlaunin í greininni vann Oksana Masters frá Bandaríkjunum.
Þó úrslitin hafi ekki verið eins og Arna hafði vonast sýndi hún mikinn karakter og seiglu með því að klára keppnina, þrátt fyrir fall, brotið skíði og erfiðar aðstæður á brautinni.
Þátttaka Örnu á leikunum er söguleg fyrir íslenskt íþróttalíf þar sem hún er fyrsta íslenska konan sem tekur þátt í bæði sumar og vetrar Paralympics.
ÍF óskar Örnu innilega til hamingju með sögulegan áfanga.

mynd/ Jón Björn Ólafsson
