Heim Uncategorized Tveir þjálfarar með alþjóðleg þjálfararéttindi í sitjandi blaki

Tveir þjálfarar með alþjóðleg þjálfararéttindi í sitjandi blaki

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Tveir þjálfarar með alþjóðleg þjálfararéttindi í sitjandi blaki
0
40

Tveir þjálfarar á Íslandi, þau Thelma Dögg Grétarsdóttir og Borja González sóttu 27.-29. nóvember alþjóðlegt þjálfaranámskeið í sitjandi blaki sem fór fram í Slóveníu.

Ferðin markar tímamót fyrir sitjandi blak á Íslandi en nýlega undirritaði Blaksamband Íslands samstarfssamning við ParaVolley Europe. Thelma og Borja sem lokið höfðu bóklega hluta námsins fyrir komu sína í Slóveníu náðu einnig verklega hlutanum og útskrifuðust því með 1. stigs alþjóðleg þjálfararéttindi í sitjandii blaki.

Þjálfararnir koma heim reynslunni ríkari og stefna að því að setja af stað verkefni í sitjandi blaki þar sem markmiðið er að bjóða öllum áhugasömum, óháð aldri eða getu að prófa.

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In Uncategorized
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Dagur sjálfboðaliðans: Takk fyrir ykkur

Í dag, 5. desember er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliðans en dagurinn hefur verið haldinn ár…