Heim 2. tbl 2023  YAP KYNNING Á SELFOSSI — 7. nóvember

 YAP KYNNING Á SELFOSSI — 7. nóvember

4 min read
Slökkt á athugasemdum við  YAP KYNNING Á SELFOSSI — 7. nóvember
0
778

 YAP KYNNING VERÐUR Á SELFOSSI Þriðjudaginn 7.nóvember 2023 kl 10.00 -12.00.

Staðsetning;

Leikskólinn Jötunheimar

Þessi YAP kynning er sérstaklega fyrir stjórnendur og starfsfólk leikskóla á Suðurlandi. Markmið er  vekja áhuga og fá sem flesta til að vinna með YAP verkefnið í leikskólum Suðurlands. Árangur er athyglisverður og vonast er til þess að sem flestir stjórnendur leikskóla á Suðurlandi sjái sér fært að mæta.  

DAGSKRÁ

10.00 – 10.30   Sigurlín J Baldursdóttir, íþróttakennari í Jötunheimum kynnir sitt starf                         

Hreyfiþjálfun –  2 ára börn spreyta sig í æfingum 

10.30 – 10.45     Hlé

10.45 – 11.55 Innleiðing YAP  –  Anna Karólína Vilhjalmsdóttir, frkvstj. SO á Íslandi 

11.55 – 11.25 YAP hreyfiþjálfun hjá heilsuleikskólanum Skógarási, Ásbrú. 

Ásta Katrín Helgadóttir, íþróttakennari og Þóra Sigrún Hjaltadóttir leikskólastjóri

 11.25 – 11.40      Fyrirspurnir og umræður     

11.40 – 12.00    Næstu skref á Suðurlandi

Young athlete project eða YAP – er alþjóðlegt verkefni á vegum Special Olympics samtakanna. Markmið er að stuðla að markvissri hreyfiþjálfun barna á aldrinum 2 til 7 ára. YAP er í grunninn hreyfiþjálfun en nýtist einnig sem verkfæri sem tengir saman hreyfiþjálfun, málþroska og félagsfærni. Æfingar sem unnið er með taka fyrir ákveðna þætti sem fylgt er eftir og markviss nálgun nær fram markverðum árangri. 

Mörg önnur námstækifæri sem skipulögð hreyfing hefur í för með sér fyrir börn er að þau læra ekki bara grunnþætti hreyfiþroska heldur þróa einnig með sér mikilvæga færni til náms. Þar er m.a. verið að tala um að skiptast á, læra að deila, fara eftir fyrirmælum og skilja leiðbeiningar sem þeim eru gefnar. Í skipulögðum hreyfistundum er hægt að blanda inn í hreyfiæfingarnar, stærðfræði, orðaforða og málörvun, flokkun,  ofl.  Hinsvegar er það ekki nóg að vera einungis í frjálsum leik í hreyfisal, þar sem frjáls leikur eflir ekki markvisst grunnþætti hreyfiþroska barna (Logan, Lucas, Robinson og Wilson, 2011). Fagmenn þurfa að kunna að leiðbeina, hvetja og stýra hreyfingu barnanna, því að þannig náum við tilætluðum árangri. Enn fremur hefur verið sýnt fram á að snemmtæk íhlutun við hreyfivanda eykur hreyfifærni barna með slakan hreyfiþroska( Sigmundsson og Petersen 2000).

Sækja skyldar greinar
Load More By Anna Karólína Vilhjálmsdóttir
Load More In 2. tbl 2023
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Magnús Orri í stóru  hlutverki á leiðtogaráðstefnu Special Olympics

Magnús Orri Arnarsson var aðalljósmyndari á leiðtogaráðstefnu Special Olympics í Evrópu se…