Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík fagnar 50 ára afmæli félagsins þann 1. júní næstkomandi.
Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík var stofnað 30. maí 1974. Félagið var það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Markmið félagsins er að gera fötluðu fólki kleift að stunda íþróttir til æfingar og keppni. Félagið var einn af stofnaðilum Íþróttasambands Fatlaðra árið 1979 og er stærsta aðildarfélag þess. Árið 1992 tók félagið í notkun eigið íþróttahús að Hátúni 14 og fer meginhluti starfseminnar fram þar.
Opið hús verður í aðstöðu félagsins, Hátúni 14 milli kl 11:00 – 14:00. Öll velkomin.