Virtus er viðurkennd alþjóðasamtök íþróttamanna með fötlun sem hafa umsjón með íþróttafólki með þroskahömlun í afrekskeppni og íþróttaþróun. Í ár fagna samtökin 40 ára afmæli frá stofnun samtakanna.
Virtus, áður kölluð INAS, var stofnað árið 1986 og hefur síðan þá vaxið úr 14 aðildarríkjum yfir í 500.000 íþróttafólk frá 90 þjóðum um allan heim. Árið 2018 fóru samtökin í breytingar þar sem í kjölfarið var nafnið „Virtus“ tekið upp ásamt því að bætt var við flokknum II3, sem er fyrir íþróttafólk með einhverfu.
Árið 2020 sá Virtus um 15 viðburði fyrir bæði sumar og vetrar íþróttagreinar þar sem meira en 7.000 íþróttafólk var skráð til leik.
Virtus stefnir nú að meiri þáttöku í Paralympics hreyfingunni, undanfarin ár hafa samtökin staðið fyrir Global Games sem fara fram með fjöggurra ára fresti og eru alltaf haldin árið á undan Paralympics. Ísland hefur átt keppendur á Global Games árið 2019 og 2023 og stefnir á að senda hóp á Global Games 2027 sem fer fram í Egyptalandi.


Árið 2025 sendi Ísland í fyrsta sinn þáttakanda á Heimsmeistaramót Virtus í sundi sem fór fram í Tælandi. Sundmaðurinn Snævar Örn Kristmansson mætti þar til leiks og kom heim með 3 silfurverðlaun og fjögur Íslandsmet.

Það verður gaman að fylgjast með samtökunum stækka og sjá hvað framtíðin hefur í för með sér fyrir íþróttafólkið okkar!
