Valdimar Gunnarsson hefur látið af störfum sem verkefnastjóri Allir með verkefnisins eftir þrjú einstaklega gjöful ár. Verkefnið, sem var einmitt sett á laggirnar fyrir þremur árum, hefur það að yfirlýstu markmiði að fjölga tækifærum fyrir börn með fatlanir og börn sem ekki hafa fundið sig í hefðbundnu íþróttastarfi.
Valdimar er víst löggilt gamalmenni, orðinn 68 ára gamall, og getur því farið á eftirlaun. Hann er þó ekki alveg hættur að vinna.
„Ég er alveg hættur að vinna á mesta máta, í fastri vinnu. Ég ætla að taka að mér verkefni hér og þar ef það býðst, að vera í einhverri vinnu þar sem ég þarf ekki alltaf að mæta klukkan eitthvað ákveðið, eða bara þegar það hentar mér,“ segir Valdimar í samtali við Hvata Sport og viðurkennir að það sé nokkuð einkennilegt að vera hættur í fastri vinnu.
„Það er skrítið. Ég tók þessa ákvörðun þegar ég byrjaði á þessu verkefni fyrir þremur árum. Ég klára þessi þrjú ár og þá er ég orðinn 68 ára og þá er kominn ágætis tímapunktur til að hætta í fastri vinnu. Svo eftir því sem tíminn leið og stundin nálgaðist fór ég að velta því fyrir mér hvort þetta hafi verið rétt hjá mér,“ segir hann og hlær.
„Af því að mér finnst ég vera í góðu formi ennþá og mér fannst bara svo gaman í þessu verkefni. Bæði gaman og þarft,“ segir Valdimar.
Vissi ekki neitt um íþróttir fatlaðra
Margt hefur gerst á þeim undanförnu þremur árum sem hann hefur verið verkefnastjóri Allir með. Var Valdimar beðinn um að fara aðeins yfir upphaf verkefnisins og hvernig það hefur þróast.
„Upphafið að því hvernig ég kem inn í þetta verkefni er þannig að ég var búinn að vera framkvæmdastjóri UMSK í einhver 14 ár og sagði upp starfi mínu þar. Ég var búinn að ákveða að hætta þessu íþróttabrölti og fara að gera eitthvað annað síðustu árin sem ég væri að vinna,“ segir hann kíminn.
Örlögin höguðu því þó þannig að íþróttabrölt Valdimars, eins og hann kallar það sjálfur, var síður en svo á undanhaldi.
„Þá fékk ég símtal og það var spurt hvort ég hefði áhuga á að skoða þetta verkefni. Ég gerði það og í framhaldi af því ákvað ég að taka þetta að mér, eftir að ég sá hver staðan á þessu máli og þessum málaflokki væri. Að við værum bara ekkert að standa okkur vel, við Íslendingar.
Að við þyrftum að gera betur. Á þessum tímapunkti var ég alveg tilbúinn að fara í þetta verkefni. En þegar ég tók þetta að mér áttaði ég mig á því að ég vissi ekki neitt um íþróttir fatlaðra, ekki neitt.
Það hefur alltaf komið betur og betur í ljós eftir því sem tíminn leið í verkefninu að þessi hópur er bara ósýnilegur í samfélaginu. Þetta er svolítið týndur hópur. Stærstur hluti þjóðarinnar hefur ekki hugmynd um hvað við erum að gera eða hvað er í boði jafnvel,“ segir Valdimar.

Reyna að gera þennan hóp sýnilegri
Af þessu leiðir að Allir með hyggst áfram gera allt sem í valdi sínu stendur til þess að gera þennan hóp, fötluð börn, sýnilegri í íslensku samfélagi. Auglýsingaherferð er áætluð eftir sumarið.
„Við erum að fara af stað með ákveðna herferð í haust sem gengur út á það að sýna fram á hvað er í boði og líka að ýta á þá aðila sem þarf að ýta á til að fjölga tækifærum fyrir fötluð börn. Eins og íþróttafélög, sveitarfélög og ýmsa aðila sem þarf til að koma svona verkefnum í gang.
Við höfum undirbúið þetta með aðstoð auglýsingastofu. Svo verður keypt auglýsing og ákveðið efni verður keypt í sjónvarpi og á samfélagsmiðlum. Þessi herferð kemur til með að byrja í september. Við erum að undirbúa hana núna. Með þessu ætlum við að reyna að gera þennan hóp sýnilegri í samfélaginu,“ útskýrir hann.
Fötluð börn eiga sama rétt og ófötluð börn
Nú þegar Valdimar lítur um öxl að starfi loknu finnst honum sem starf Allir með hafi náð góðum árangri til þessa.
„Verkefnið gengur að stærstum hluta út á að breyta viðhorfi í samfélaginu, að fötluð börn eigi sama rétt á að stunda íþróttir eins og ófötluð börn. Við þurfum að finna leiðir til þess hvernig við getum gert það. Það hefur svolítið verið hlutverk mitt í verkefninu að heimsækja íþróttafélögin og reyna í sameiningu að finna leiðir til þess hvernig íþróttafélagið geti farið af stað með æfingar fyrir þennan hóp.
Við höfum verið að horfa á þetta þannig að við fáum hverfisfélögin til að byrja að bjóða upp á æfingar því það eru rannsóknir erlendis sem segja okkur það að það eru margfalt meiri líkur á því að barn sem er með einhvers konar fötlun fari að æfa íþróttir eftir því sem framboðið er nær heimili þeirra.
Þess vegna erum við að leggja áherslu á að hverfisfélögin, sérstaklega stóru félögin á höfuðborgarsvæðinu og í stærri bæjum, bjóði upp á æfingar fyrir þessa krakka. Þetta er það sem við höfum verið að leggja áherslu á, að fá íþróttafélögin til þess að bjóða upp á æfingar.“

Eins og að setja niður kartöflur
Valdimar þykir því ástæða til bjartsýni og telur að Allir með muni áfram og í auknum mæli geta stuðlað að fjölgun tækifæra í íþróttastarfi fyrir fötluð börn.
„Já, ég hef alveg fulla trú á því. Okkur hefur tekist að fjölga tækifærum, það hafa orðið til ný tækifæri út um allt land. Sum eru stór og önnur eru bara lítil, þar sem eru frá 2-3 einstaklingum alveg upp í hátt í 40 einstaklinga að æfa í ákveðnum íþróttagreinum.
Svo varðandi það hvort þetta sé að skila árangri, ég segi það alveg hiklaust að svo sé þegar það eru farin að verða til ný verkefni án þess að ég sé að pota í einhvern. Þá finnst mér við vera komin á ákveðinn stað og það sama gildir um viðhorfið.
Viðhorfið hefur breyst. Menn eru farnir að finna það hjá sjálfum sér, íþróttafélögin, sveitarfélögin og fleiri, að þetta sé eitthvað sem við verðum að gera. En þetta tekur allt tíma. Ég hef stundum líkt þessu við að setja niður kartöflur. Svo fara þær að koma upp hægt og rólega, ein og ein.“
Thelma Dögg Grétarsdóttir er nú tekin við starfi verkefnastjóra Allir með verkefnisins. Hún tók formlega við í byrjun júní eftir að hafa unnið náið með Valdimar við verkefnið í nokkra mánuði á undan. Eftir samstarfið telur hann það morgunljóst að Allir með sé í bestu mögulegu höndum.
„Já, við erum að fá frábæra manneskju til þess að taka við. Ég hef engar áhyggjur af verkefninu í hennar höndum. Við erum búin að vera saman í þessu núna síðustu mánuði.“

Allir eiga rétt á að vera með
Valdimar hefur ekki alveg lokið afskiptum af Allir með. Fyrst þarf hann að ljúka sínu síðasta verkefni auk þess sem hann hyggst áfram aðstoða Thelmu Dögg þegar þörf krefur.
„Ég er búinn að gefa það út að ég ætla að klára þessa herferð. Það er svona það sem ég ætla að halda utan um. Svo mun ég náttúrlega vera Thelmu innan handar. Hún getur alltaf hringt í mig eða hvernig sem það er. Við verðum áfram í sambandi.
Það eru fullt af hlutum sem þú lærir ekkert á einhverjum tveimur dögum. Það eru fullt af tengiliðum út um allt land sem hún þarf núna að vita af. Þetta er bara þannig verkefni að þú hoppar ekkert út úr því einn, tveir og þrír.“
Hvað hefur þetta starf gefið þér?
„Ég er nú búinn að gera margt á lífsleiðinni. Mér finnst þetta vera það verkefni sem hefur skilað mér mestu, bara af því að þetta er svo gott fyrir hjartað. Að finna að eitthvað sem þú ert að gera sé mikils virði.
Mikils virði fyrir svo marga sem hafa kannski verið svolítið til hliðar. Að við getum boðið fleirum upp á það að taka þátt í samfélaginu eins og allir eiga rétt á, að vera með,“ segir Valdimar Gunnarsson einlægur í samtali við Hvata Sport.
Viðtal/ Gunnar Egill Daníelsson
