Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í einliðaleik í boccia fór fram á Selfossi helgina 31. október – 1. nóvember síðastliðinn. Mótshaldari var Suðri-Selfoss í tilefni af 40 ára afmælisári Suðra.
Eftir frábært Íslandsmót í sterkri umgjörð Suðra-Selfoss var haldið veglegt lokahóf á Hótel Selfossi og þar ákvað stjórn Íþróttasambands fatlaðra að sæma þau Ófeig Á. Leifsson og Þórdísi Bjarnadóttur silfurmerki ÍF.
Ófeigur er í dag formaður Suðra-Selfoss og Þórdís ritari en hún gegndi áður formannshlutverki hjá Suðra. Bæði hafa þau hjónin unnið öttullega að íþróttastarfi fatlaðra á Selfossi og í nærliggjandi umhverfi. Síðasta verk þeirra, Íslandsmótið í boccia, er vitnisburður um öflug vinnubrögð og hæfni til að virkja heilt samfélag til þátttöku í mótahaldi fatlaðra en sjáflboðaliðar voru fjölmargir og settu frábæran svip á mótið.
Stjórn og starfsfólk Íþróttasambands fatlaðra óskar Ófeigi og Þórdísi til hamingju með silfurmerkin en þau eru einstaklega vel að heiðrinum komin. Með kærri þökk fyrir ykkar miklu og óeigingjörnu störf.
Mynd/ Þorgeir Baldursson – Frá vinstri eru Ófeigur Á. Leifsson, Þórdís Bjarnadóttir, Linda Kristinsdóttir ritari stjórnar ÍF og Halldór Sævar Guðbergsson gjaldkeri ÍF en það voru Linda og Halldór sem sæmdu Ófeig og Þórdísi merkinu fyrir hönd stjórnar ÍF.
