Íslensku menntaverðlaunin 2026 voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum nýverið. Verðlaun voru veitt í fimm flokkum, fyrir framúrskarandi skóla- og menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun. Auk þess voru veitt sérstök hvatningarverðlaun.
Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti hlýtur verðlaunin í ár fyrir að þróa einstaklingsmiðað nám sem hefur það að markmiði að þroska með nemendum hæfni sem gerir þeim fært að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs.
Íþróttasamband fatlaðra sendir öllu starfsfólki Fjölbrautaskólans í Breiðholti heillaóskir í tilefni af þessum virðulegu verðlaunum en ÍF, Special Olympics og FB hafa um árabil átti í miklu og góðu samstarfi.
Til hamingu FB!
Nánar í frétt á RÚV
