Heim 2. tbl. 2026 Agnetha Ýr setti fyrsta Íslandsmetið í flokki S19 kvenna á ÍM25

Agnetha Ýr setti fyrsta Íslandsmetið í flokki S19 kvenna á ÍM25

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Agnetha Ýr setti fyrsta Íslandsmetið í flokki S19 kvenna á ÍM25
0
87

Íslands- og unglingameistaramótið í 25 metra laug fór fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði um síðustu helgi, dagana 13.–15. nóvember. Mótið var haldið í samstarfi við Sundsamband Íslands (SSÍ) og gekk afar vel fyrir sig.

Á föstudeginum synti Agnetha Ýr Guðmundsdóttir frá Breiðabliki 50 metra baksund á tímanum 37,45 sekúndum og setti þar með fyrsta Íslandsmetið í flokki S19 kvenna, sem er keppnisflokkur einstaklinga með einhverfu. Þetta var í fyrsta sinn sem kona keppti í þessum flokki á Íslandsmóti.

Flokkur S19 tilheyrir flokki III hjá VIRTUS (áður INAS-Fid), sem eru heimssamtök íþróttafólks með þroskahamlanir, einhverfugreiningar, Downs-heilkenni og aðrar líkamlegar takmarkanir. Ísland hefur um árabil átt virka aðild að samtökunum, en árið 2027 verða VIRTUS Global Games haldnir í Egyptalandi. Það eru stærstu leikar samtakanna og fara fram fjórða hvert ár.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 2. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

DANS ÁN HINDRANA- Glæsilegur hópur stefnir til Þýskalands

Dans án hindrana er danshópur á vegum Danslistarskóla JSB sem mun taka þátt í  f…