Danmörk Open Air fór fram dagana 11-14 febrúar í bænum Vildbjerg. Mótið er stærsta alþjóðlega keppni Danmerkur í loftskammbyssu og loftriffli sem hefur farið fram síðan árið 2019 þar sem keppt er í flokkum fatlaðra og ófatlaðra.
Þór Þórhallsson mætti til leiks á mótinu þar sem hann tók þátt í 10m loftriffli í flokki SH2. Þór náði best 631.9 stigum og varð 4 inn í úrslitin seinna um daginn. Í úrslitunum náði hann 144.9 stigum og endaði í 7 sæti.

