
Heimsleikar Special Olympics 2025 voru á haldnir á Ítalíu og létu 1.500 keppendur frá 100 þjóðum ljós sitt skína í 8 íþróttagreinum, dansi, alpagreinum og skíðagreinum, listhlaupi á skautum, skautahlaupi, snjóbretti, þrúguhlaupi og hokký.
Ísland hefur átt keppendur í listhlaupi á skautum á vetrarheimsleikum Special Olympics frá árinu 2005. Það voru Bjarki Rúnar Steinarsson og Védís Harðardóttir, bæði frá skautadeild Aspar sem mættu til leiks í skautakeppnina 2025. Ísland sendi í fyrsta skipti keppanda í alpagreinum, Victoríu Ósk Guðmundsdóttur. Dans er ný keppnisgrein á heimsleikum SOI. Ísland sendi „Unified“ keppnislið sem byggir á keppni fatlaðra og ófatlaðra. Liðið skipuðu þau Ingólfur Bjartur Magnússon, sem er jafnframt danskennari og Þórdísi Erlingsdóttir, bæði frá Dansfélaginu Hvönn.
Ísland fékk kvóta í skíðagöngu en niðurstaða varð sú að bjóða Grænlandi að nýta kvóta Íslands og fylgja íslenska hópnum en þeir hafa aldrei átt keppendur á heimsleikum SOI. Mikil ánægja var með þetta tilboð og tveir fulltrúar Grænlands mættu á leikana sem fulltrúar danska hópsins.
Hér að neðan er hægt að lesa nánar um íslensku keppendurna
Viktoría Ósk Guðmundsdóttir, Alpagreinar
Victoria Ósk Guðmundsdóttir skíðakona keppti í risastórsvigi og stórsvigi. Raðað er í styrkleikaflokka eftir að allir hafa farið gegnum ákveðna undankeppni og Viktoría keppti í styrkleikaflokki 2 en raðað var í þrjá styrkleikaflokka i hennar grein.
Hún mætti á skíðanámskeið hjá ÍF fyrir rúmu ári og i kjölfarið var ákveðið að hún yrði valin til keppni i byrjendaflokki á heimsleikum Special Olympics 2025. Það hefur verið aðferð sem hefur reynst vel til að kynna nýjar greinar, að sækja um kvóta í nýrri grein og leita að kandídat til að ryðja brautina. Áhaldafimleikar, nútímafimleikar, listhlaup á skautum og golf eru dæmi um greinar sem innleiddar voru á þennan hátt.
Victoria hefur sannarlega staðið sig vel og árs undirbúningur skilaði henni upp úr byrjendaflokki í styrkleikaflokk 2 þar sem hún skilaði sínu glæsilega og var í öðru sæti í báðum keppnisgreinum.
Hún hefur þurft að stíga margvísleg ný skref í gegnum þetta verkefni, fara í viðtöl og myndatökur og stíga út fyrir þægindarammann á mörgum sviðum.
Það hefur verið stórkostlegt að fylgjast með henni og sjá hana eflast og blómstra á Ítalíu og þar eiga stóran þátt liðsmenn okkar í þjálfarateyminu, Lilja Sólrún og Elsa Björk. Þær eru fulltrúar í vetraríþróttanefnd ÍF og þeirra verkefni auk þjálfarahlutverks var að kynna sér þau tækifæri sem bjóðast a sviði vetraríþrótta. Ekki síður að skapa tengsl sem geta opnað á ný tækifær

Bjarki Rúnar Steinarsson og Védís Harðardóttir. Listhlaup á skautum
Special Olympics á Íslandi hóf innleiðingu á listhlaupi á skautum árið 2005 en þá fóru fyrstu íslensku keppendurnir á heimsleika Special Olympics. I upphafi var samstarf við Skautafélagið Björninn og Skautafélag Reykjavíkur en síðan tók íþróttafélagið Ösp við keflinu og stofnuð var skautadeild Aspar þar sem þróun hefur orðið hröð og sífellt fleiri iðkendur koma í hópinn. Deildin hefur lagt metnað í gæði þjálfara og gríðarlega vel er staðið að umsjón starfsins sem leitt var frá upphafi af Helgu Olsen. Fjölmargir þjálfarar hafa komið til liðs við deildina og mikið og gott samstarf hefur verið við skautasamband Íslands og önnur skautafélög. Védís Harðardóttir keppti í styrkleikaflokki 2 og Bjarki Rúnar Steinarsson styrkleikaflokki 1. Þau stóðu sig bæði mjög vel, Védís var í þriðja sæti og Bjarki í öðru sæti. Bjarki hefur áður tekið þátt í heimsleikum Special Olympics en það var í LA árið 2015 þar sem hann keppti í frjálsum íþróttum. Védís var að taka þátt í sínum fyrstu heimsleikum. Þjálfarar keppenda á Ítalíu eru Andri Magnússon og Hanna Rún Ragnarsdóttir sem búa yfir miklum eldmóði og áhuga og það er mjög góð stemming í hópnum. Foreldrar Bjarka og systir komu til Ítalíu að fylgjast með sínum manni og móðir Védísar, Kristín Pálsdóttir var læknir íslenska hópsins.


Þórdís Erlingsdóttir og Ingólfur Bjartur Magnússoon. „Dans unified”
Dans var í fyrsta skipti keppnisgrein á heimsleikum Special Olympics. Áður hefur dans verið sýningargrein en gríðarlegur áhugi hefur verið að að fá dans inn sem keppnisgrein. Special Olympics á Íslandi leitaði samstarfs við dansfélagið Hvönn til að velja fyrstu íslensku keppendurna á heimsleika Special Olympics. Dansfélagið Hvönn hefur sýnt mikinn áhuga á að opna dyrnar fyrir alla þegar dans er annars vegar og þar hefur verið vel tekið á móti öllum og reynt að aðlaga kennslu að hverjum og einum. Í samstarfi við Danssamband Íslands og Special Olympics á Íslandi tók keppandi frá dansfélaginu Hvönn þátt í sérstökum stjörnuflokki hjá DSÍ en það var Agatha Erna Jack, sem síðan var valin til þátttöku í danskeppni Special Olympics í Austurríki 2021 þar sem varð brautryðjandi fyrir aðra íslenska keppendur. Þórdís hefur tekið áður þátt á heimsleikum Special Olympics en þá keppti hún í listhlaupi á skautum. Ingólfur Bjartur var að kynnast Special Olympics hugmyndafræðinni í fyrsta sinn gegnum þátttöku í þessum leikum.

Þjálfarar með íslenska hópnum á Ítalíu voru Tinna Karen Guðbjartsdóttir og Hjördís Hjörleifsdóttir danskennarar hjá Hvönn. Keppendur voru þau Ingólfur Bjartur Magnússson, sem jafnframt er danskennari hjá Hvönn og Þórdís Erlingsdóttir. Þau kepptu i „unified” dansi. „Unified” hugmyndafræðin byggir á samstarfi fatlaðra og ófatlaðra og hugtakið tengist jafnt keppni sem öðrum þáttum. „Unified” sport tengist æfingum og keppni eins og þarna á við en einnig er mjög öflugt verkefni í gangi innan Special olympics samtakanna sem tengist inngildingu í menntun og ber heitið „unified“ schools.
Heimildarmyndin Sigur fyrir sjálfsmyndina verður sýnd í Bíó Paradís frá og með 1. október næstkomandi.