Allir með mun halda málþing 30. janúar þar sem farið verður yfir vegferð verkefnisins síðustu þrjú ár, reynslu af vettvangi ásamt lausnum og hver næstu skref eru í átt að íþróttastarfi fyrir öll börn.
Á málþinginu verður fjallað um stöðu fatlaðra barna í íþróttum í dag, rannsókn um þátttöku, reynslu barna, foreldra og íþróttafélaga sem og þau verkefni og samstarf sem þegar eru í gangi. Við munum ræða hvernig ná megi betur til forledra, styrkja íþróttafélög og þjálfara ásamt því að. Skoða úrræði og lausnir sem eru til staðar.
Öllum er velkomið að mæta, taka þátt í deginum og leggja sitt af mörkum til að allir fái að vera með.
Hægt er að skrá sig á málþingið með því að fylla í formið hér
Dagsetning: 30. janúar 2026
Tímasetning: 09:00-13:00
Staðsetning: Minigarðurinn, Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Boðið verður upp á streymi, hægt verður að finna það á viðburðarsíðu málþingsins hér
Dagskrá málþingsins má sjá hér að neðan

