Heim 1. tbl. 2025 Jón Björn ráðinn framkvæmdastjóri afreks- og fjármálasviðs ÍF

Jón Björn ráðinn framkvæmdastjóri afreks- og fjármálasviðs ÍF

3 min read
Slökkt á athugasemdum við Jón Björn ráðinn framkvæmdastjóri afreks- og fjármálasviðs ÍF
0
741

Jón Björn Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri afreks- og fjármálasviðs Íþróttasambands fatlaðra. Jón Björn tekur við af Ólafi Magnússyni sem nýverið lét af störfum eftir 40 ára farsæla þjónustu við íþróttir fatlaðra í landinu.

Árið 2008 hóf Jón Björn störf hjá ÍF og hefur því 16 ára reynslu af starfsemi sambandins. Lengst af hefur hann gegnt starfi Íþrótta- og fjölmiðlafulltrúa hjá ÍF en hann hefur einnig verið aðalfararstjóri Íslands á sumar- og vetrarleikum Paralympics frá árinu 2016.

Jón Björn lauk námi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og síðan BA-gráðu í íslensku við Háskóla Íslands ásamt diplómanámi í fjölmiðlafræði. Hann lauk svo MBA-námi við Háskóla Íslands 2019 meðfram fullu starfi hjá ÍF. Jón Björn stofnaði vefsíðuna Karfan.is og stýrði henni allt til árins 2017 og þá hefur hann einnig gegnt ábyrgðarstöðum hjá Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur og lætur nú þar af störfum sem formaður barna- og unglingaráðs Körfuknattleiksdeildarinnar nú þegar hann tekur við sem afreks- og fjármálastjóri ÍF.

Jón Björn er kvæntur Hilmu Hólmfríði Sigurðardóttur og saman eiga þau þrjú börn.

Stjórn Íþróttasambands fatlaðra lítur björtum augum til framtíðar en ljóst er að breyfingar eru í farvatninu hjá sambandinu sem spennandi verður að takast á við. Við óskum Jóni Birni til hamingju með stöðuna og um leið þökkum við Ólafi Magnússyni innilega fyrir hans ómetanlega framlag til ÍF.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2025
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Ragnar landsliðsþjálfari til og með LA 2028

Íþróttasamband fatlaðra og Ragnar Friðbjarnarson landsliðsþjálfari ÍF í sundi hafa framlen…