Íslandsmótið ÍF í borðtennis fór fram laugardaginn 7. mars í íþróttahúsi ÍFR. Alls tóku 27 keppendur þátt, 17 karlar og 10 konur.
Lið ÍFR var fjölmennt á mótinu og unnu Íslandsmeistaratitil í 7 af 9 flokkum. Björgvin Ingi Ólafsson (HK) mætti einnig til leiks og sigraði í flokki 6–10, opnum flokki karla og í tvíliðaleik karla ásamt Björgvini Arnari (ÍFR).
Anna Karen Malmquist sigraði opna flokk kvenna; hún var jafnframt yngst keppenda á mótinu. Anna Karen er nýkrýndur Íslandsmeistari í tvíliðaleik meyja U15 ófatlaðra ásamt Agnesi Lovísu.

Íslandsmeistarar 2026
- Flokkur 11 kk: Óskar Kemp, ÍFR
- Flokkur 11 kvk: Soffía Rúna Jensdóttir, ÍFR
- Flokkur 1–5: Hákon Atli Bjarkason, ÍFR
- Flokkur 6–10: Björgvin Ingi Ólafsson, HK
- Opinn flokkur kk: Björgvin Ingi Ólafsson, HK
- Opinn flokkur kvk: Anna Karen Malmquist, ÍFR
- Tvíliðaleikur kk: Björgvin Arnar Arnarsson (ÍFR) og Björgvin Ingi Ólafsson (HK)
- Tvíliðaleikur kvk: Jóna Kristín Erlendsdóttir og Valgerður Jónsdóttir, ÍFR
- Tvenndarleikur: Hákon Atli Bjarkason og Jóna Kristín Erlendsdóttir, ÍFR
Hægt er að skoða úrslit mótsins hér.









