Heim 1. tbl. 2026 Hulda getur ekki hætt að keppa og þjálfar fatlaða og ófatlaða: „Ósköp svipað“

Hulda getur ekki hætt að keppa og þjálfar fatlaða og ófatlaða: „Ósköp svipað“

7 min read
Slökkt á athugasemdum við Hulda getur ekki hætt að keppa og þjálfar fatlaða og ófatlaða: „Ósköp svipað“
0
218

Viðtal: Gunnar Egill Daníelsson

Hulda Sigurjónsdóttir er margfaldur Íslandsmeistari í bæði kúluvarpi og sleggjukasti í F20 flokki þroskahamlaðra og slær hvergi slöku við þrátt fyrir að vera orðin fertug. Hulda keppti lengst af í kúluvarpi og fór á fjögur Evrópumót og eitt heimsmeistaramót í greininni. Fyrir fáeinum árum skipti hún alfarið yfir í sleggjukast.

Auk þess að keppa sjálf af fullum krafti er Hulda dugnaðarforkur mikill þegar kemur að þjálfun. „Ég er að þjálfa frjálsar íþróttir hjá Ármanni og lyftingar hjá Öspinni,“ segir hún. Hulda þjálfar bæði fatlaða og ófatlaða.

Spurð hvernig það gangi segir hún: „Bara mjög vel. Mér finnst það mjög gaman.“ Hulda kveðst þá ekki finna neinn mun á því að þjálfa fatlaða og ófatlaða. Nei, þetta er bara ósköp svipað.“

Hún segir fjölda fatlaðra iðkenda hafa aukist mikið hjá bæði Ármanni og Öspinni á þeim tíma sem Hulda hefur þjálfað hjá félögunum. Hjá Ármanni er hún að þjálfa mikinn fjölda flokka og hjá Öspinni þjálfar Hulda einn flokk.

„Ég er með frá fimmta bekk alveg upp í meistaraflokk hjá Ármanni. Ég er einu sinni í viku að aðstoða í lyftingum hjá Öspinni. Það eru bara fullorðins lyftingar,“ útskýrir hún.

Vil finna einhvern sem er jafn góður og ég

Í þjálfuninni er hún með mikinn metnað og skýr markmið.

„Ég er með markmið um að ná fleirum í frjálsar í unglingaflokki hjá fötluðum. Markmiðið er að finna einhvern sem er jafn góður og ég er eða var og hjálpa þeim að komast á stórmót eins og ég fékk að fara á.

Svo bara að finna fleiri krakka, unga og efnilega, og halda þeim við. Stefnan er að Ármann sé með besta liðið á Íslandi,“ segir Hulda og bætir við að hún sé bjartsýn á að það takist.

„Já, ég held það. Við erum allavega búin að ná að vinna í flokki 11-14 ára í frjálsum á Íslandsmótinu í vetur.“

Var komin með algjörlega nóg af kúlunni

Hulda ákvað sem fyrr segir að venda kvæði sínu í kross og einbeita sér alfarið að sleggjukasti eftir að hafa borið af í kúluvarpi um langt árabil, en hún keppti lengi vel í báðum greinum.

Hvernig fannst þér að breyta til?

„Mér fannst það mjög gaman því ég var komin með algjörlega nóg af kúlunni og veit að ég á mikið inni í sleggjunni. Mér finnst skemmtilegt að geta kastað henni langt,“ segir Hulda hreinskilin.

Hulda stefnir vitanlega langt í sleggjukasti eins og í öllu öðru sem hún tekur sér fyrir hendur og mun keppa á alþjóðlegu móti erlendis í sumar. „Já, ég er á leiðinni til Póllands í júlí til þess að keppa á Evrópuleikum Virtus,“ segir hún.

Stefnir á heimsmeistaramót í lyftingum

Hulda fagnaði fertugsaafmæli síðasta sumar en er ekki viss um að hún muni nokkurn tímann hætta að keppa.

„Nei, ég held ekki. Ég held að ég muni alveg vera eitthvað áfram í þessu. Markmiðið er að fara á Global Games á næsta ári og svo sjá bara til hvað gerist eftir það.  Svo verður maður kannski kominn í fullorðins frjálsar eftir það!“ segir Hulda í léttum dúr.

Þá er þess ógetið að hún hefur sömuleiðis keppt í lyftingum og þarf það ekki að koma á óvart að Hulda eigi einnig Íslandsmet í lyftingagreinum.

„Markmiðið mitt er líka að halda áfram að verða sterkari í lyftingum og komast á heimsmeistaramót þar. Ég hef keppt á Special Olympics í lyftingum. Svo ætla ég að reyna að vera áfram besta útgáfan af sjálfri mér og ná sem flestum inn í frjálsar eða lyftingar,“ segir Hulda Sigurjónsdóttir ákveðin.

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Arna fimmti Íslendingurinn á Vetrar Paralympics

Vetrar Paralympics verða settir í Milano Cortina þann 6. mars næstkomandi og standa til 15…