Það vakti athygli íþróttaáhugafólks þegar afreksíþróttamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson, sem er einfættur eftir að hafa greinst með krabbamein í hné ungur að árum, ákvað að hætta að keppa á skíðum eftir VetrarParalympics árið 2022. Hilmar tók einnig þátt á VetrarParalympics 2018 og keppti í alpagreinunum svigi og stórsvigi með góðum árangri á leikunum tveimur.
Hann var nefnilega um árabil einn fremsti Para skíðamaður heims en hefur undanfarin ár gert sig gildandi í golfi, stundar það af miklum krafti og hefur til að mynda komist í gegnum niðurskurðinn á Íslandsmótinu í höggleik.
„Það er alveg svolítið síðan ég hætti á skíðum. 2022 er síðasta keppnistímabilið sem ég tók þátt í. Það er slatti. Ég þjálfaði veturinn eftir að ég hætti. Svo eignaðist ég barn og á tvö í dag. Ég fer með eldri stelpuna á skíði, er búinn að gera það tvisvar í vetur. Þannig að ég er bara að koma henni á skíði,“ segir Hilmar Snær.
Spurður hvort hann sé nú alfarið farinn að einbeita sér að golfinu segir Hilmar Snær: „Já, svona afrekslega séð er ég kominn þangað.“

Skíðin voru alltaf í fyrsta sæti
Var það erfið ákvörðun að hætta á skíðum og færa sig alfarið yfir í golfið?
„Ég var tiltölulega sáttur við það. Brúsinn var búinn í bili hjá mér þannig að þetta var bara komið gott. Áhuginn er svolítið kominn yfir í golfið núna,“ útskýrir hann. Hilmar Snær æfði báðar íþróttir í mörg ár en skíðin voru í forgangi um árabil.
„Skíðin voru alltaf í fyrsta sæti hjá mér og ég byrjaði að keppa í þeim 2015/16. Það var algjörlega númer eitt þannig að ég var ekkert að æfa golfið neitt á veturna. Það var bara svona með á sumrin og ég keppti alveg í því en á veturna voru skíðin alveg númer eitt, tvö og þrjú,“ segir Hilmar Snær.
Hann er ekki við eina fjölina felldur og hefur reynt fyrir sér í fleiri íþróttum.
„Með skíðunum var ég alltaf í CrossFit, frá 2017. Það hentaði mjög vel og ég fékk mikinn áhuga á því. Styrkurinn kom helvíti hratt og hentaði skíðunum ágætlega. Ég er ennþá í CrossFit en ekki alveg eins mikið og ég var. Ég var að æfa 6-7 sinnum í viku með skíðunum og núna er ég áfram í CrossFit en ekki eins mikið,“ segir Hilmar Snær.

Ætlar að gera betur á Íslandsmótinu í sumar
Hann kveðst hafa haft mikla ánægju af þátttöku sinni á Íslandsmóti ófatlaðra í höggleik í gegnum árin og vill gera enn betur.
„Það hefur bara verið stemning. Ég tók þátt síðasta sumar og missti af niðurskurðinum með einu höggi. En stefnan er algjörlega sett á að gera betur núna í sumar. Núna er ég líka í fyrsta skipti að æfa alveg að vetri til. Ég mæti á æfingar og æfi alveg slatta sjálfur. Vonandi skilar það sér í einhverjum árangri.“
Eru einhver sér golfmót á Íslandi fyrir fatlaða?
„Það er eitt mót en það gefur samt ekki neitt þegar kemur að punktum eða stigum. Það er haldið eins dags mót, yfirleitt á mánudegi eða þriðjudegi fyrir Íslandsmót. Það var í fyrra og hitteðfyrra, ég held að það hafi bara byrjað 2023 eða 2024.
Það hafa verið rosa fáir, sex eða sjö sem mæta í það, tvö eða þrjú holl. Bara svona til þess að koma þessu í gang og vekja athygli á sportinu þannig að aðrir sjái möguleikana í þessu. Ég hugsa að það sé tilgangurinn,“ segir Hilmar Snær.
Golfið hjá fötluðum fer vaxandi
Þrátt fyrir að sér golfmót fyrir fatlaða séu af skornum skammti hér á landi er töluvert af alþjóðlegum mótum á erlendri grundu. Reynir hann nú gagngert að vinna sér inn þátttökurétt á sem flestum þeirra og hefur þegar tekið þátt í tveimur.
„Algjörlega. Í fyrra fór ég tvisvar til Svíþjóðar. Síðasta vetur bjó ég í Danmörku þannig að það hentaði ágætlega þegar fór að vora. Þá tók ég eina ferð og líka þegar ég þurfti að gera mér ferð í lokapróf, þá tók ég mér aðra ferð til Svíþjóðar til þess að keppa.
Þannig að ég er búinn að taka tvö mót fyrir fatlaða úti og stefnan er að taka alveg nokkur núna í ár. Ég fékk Íþróttasamband fatlaðra með mér í þetta, þau náðu að styrkja mig aðeins sem er alveg frábært. Það er mótaröð sem ég er að stefna á að komast inn á sem heitir G4D Tour, sem er alveg mjög spennandi en það eru rosa fáir sem fá að taka þátt þar.
Það er mótaröð sem er í samstarfi við DP World Tour. Þetta er tiltölulega nýtt, þeir byrjuðu held ég 2022. Golfið hjá fötluðum er rétt að fæðast erlendis núna á síðastliðnum árum. Það fer held ég alveg vaxandi samt,“ segir Hilmar Snær.
Markmiðið hjá honum er því skýrt.
„Það er væntanlega að komast inn á þennan túr. Ég horfi á næstu 2-3 mót og reyni að bæta punktastöðuna mína á heimslista. Ég þarf að ná ákveðnu sæti til þess að geta komist þarna inn á ákveðnar mótaraðir, til þess að geta tekið þátt í öðrum mótum,“ segir Hilmar Snær Örvarsson.
Viðtal: Gunnar Egill Daníelsson
