Það var skemmtilegur viðburður í Egilshöll sunnudaginn 1. mars 2026 en þá fór fram afhending sérhannaðs búnaðar, n.k. skautaþjálfa sem styðja við þá sem ekki geta skautað hjálparlaust. Það var Sigurður Hólmar Jóhannesson framkvæmdastjóri Góðvildar styrktarsjóðs sem afhenti búnaðinn en hann er jafnframt eigandi fyrirtækisins Mobility þar sem hægt er að leigja eða panta sérhannaðan búnað.
Síða Mobility
Þær Anna Karólina Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi og Helga Olsen, íþróttagreinastjóri skautaíþrótta hjá Special Olympics á Íslandi og skautaþjálfari hjá skautadeild Aspar veittu búnaðinum viðtöku og hann var prófaður af iðkendum og foreldrum hjá skautadeild Aspar. Stefnt er að því að búnaðurinn verði einnig kynntur á Akureyri en skautahallir eru í Reykjavík og á Akureyri.
Special Olympics á Íslandi og íþróttasamband fatlaðra metur mikils þann velvilja sem að baki býr og þakkar innilega fyrir þennan ómetanlega stuðning við skautaíþróttina.
Sú þrautseigja og áhugi sem Sigurður Hólmar hefur sýnt varðandi það að berjast fyrir bættu aðgengi að sérbúnaði til útivistar, íþrótta og daglegra athafna fyrir þá sem á þurfa að halda er eftirtektarverður og það eru margir hafa notið ávinnings af þeirri baráttu.
Síða Góðvildar



