Sunnudaginn 15. mars fóru fram Íslandsleikar Special Olympics í frjálsum innanhúss. Mótið var haldið í frjálsíþróttahöllinni í kaplakrika þar sem keppt var í kúluvarpi, langstökki 60m og 400m hlaupi. Mikil stemning var í höllinni og mörg persónuleg met féllu hjá keppendum.
Á mótinu fór einnig fram sýningargrein í kúluvarpi fyrir sitjandi flokka. Þar voru mættir til leiks Valdimar Númi, Johnny, Hrólfur Geir og Sigurjón Ægir. Þeir köstuðu allir úr kaststól sem var gerður fyrir Suðra. Þetta er því í annað sinn sem keppt er í kúluvarpi úr þessum kaststól.
Við mótslok fóru keppendur upp á verðlaunapall og tóku á móti verðlaunum fyrir þáttöku á mótinu.






