Evrópumeistaramótið í Para-sundi 2026 mun fara fram í Kocaeli í Tyrklandi. World Para Swimming staðfesti að mótið fer fram dagana 7.–12. september í Gebze Olympic Swimming Pool.
Þetta verður í áttunda sinn sem Evrópumeistaramótið verður haldið í þeirri mynd sem það er í dag og í fyrsta sinn sem mótið fer fram í Tyrklandi. Þess má geta að mótið var fyrst haldið í Reykjavík árið 2009.

Mynd/ Íslenski hópurinn við lok EM 2009 ásamt þjálfurum sínum.
Evrópumeistaramótið mun innihalda 166 verðlaunagreinar sem fara fram yfir sex keppnisdaga. Mótið fer fram í borginni Kocaeli sem er staðsett um 100 km austur af Istanbúl. Kocaeli er orðin einn helsti íþróttabær Tyrklands. Hann er þekkur fyrir framúrskarandi innviði, fjölbreyttan íþróttamenningu og getu til að taka á móti stórum alþjóðlegum viðburðum. Bærinn býður upp á fjölmörg æfingasvæði, hótel og afþreyingarmöguleika sem gera borgina sérstaklega hentuga sem móttökuborg fyrir stórmót. Kocaeli hefur lagt rík áherslu á að fjárfesta í aðgengi og þátttöku fyrir fólk með fötlun, sem styrkir stöðu hennar sem leiðandi vettvangur fyrir Para-íþróttir.
Craig Nicholson, forstjóri World Para Swimming, segir mótið skapa mikilvægt tækifæri fyrir nýja íþróttamenn og gestgjafaborgir til að stuðla að jákvæðum breytingum fyrir fólk með fötlun.
