Heim 1. tbl. 2026 Arna Sigríður verður fyrst íslenskra kvenna í skiðagöngu Vetrar Paralympics

Arna Sigríður verður fyrst íslenskra kvenna í skiðagöngu Vetrar Paralympics

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Arna Sigríður verður fyrst íslenskra kvenna í skiðagöngu Vetrar Paralympics
1
400

Nú þegar Vetrarólympíuleikarnir eru enn í fullum skrúða var Íslandi að berast frábær tíðindi en Arna Sigríður Albertsdóttir hefur hlotið þátttökurétt á Vetrar Paralympics í skíðagöngu en leikarnir fara fram dagana 6.-15. mars næstkomandi.

Eins og flestum er kunnugt fara Ólympíuleikar og Paralympics fram við sömu aðstæður í sama landi enda orðið hluti af einu og sama útboðinu þegar kemur að því að velja gestgjafaþjóðir leikanna.

Arna Sigríður verður þar með fyrst íslenskra kvenna til að keppa í skíðagöngu á Vetrar Paralympics og líka fyrst íslenskra kvenna til að taka bæði þátt í sumar og vetrar Paralympics! Arna var fulltrúi Íslands á Paralympics í handahjólreiðum sem fram fóru í Tokyo 2020 (2021).

Íþróttasamband fatlaðra óskar Örnu Sigríði innilega til hamingju með keppnissætið á leikunum en hún er einmitt stödd í Noregi núna við æfingar og undirbúning.

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Að þjálfa hjá Öspinni það skemmtilegasta sem Gunnhildur Yrsa gerir

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrrverandi atvinnu- og landsliðskona í knattspyrnu, hefur um …