Heim 1. tbl. 2026 Arna Sigríður brýtur blað í íslenskri íþrótta- og ólympíusögu: „Finnst ég svolítið heppin“

Arna Sigríður brýtur blað í íslenskri íþrótta- og ólympíusögu: „Finnst ég svolítið heppin“

12 min read
Slökkt á athugasemdum við Arna Sigríður brýtur blað í íslenskri íþrótta- og ólympíusögu: „Finnst ég svolítið heppin“
1
243

Vetrar Paralympics í Mílanó og Cortina á Ítalíu verða settir í kvöld og standa leikarnir yfir til 15. mars. Arna Sigríður Albertsdóttir er eini íslenski keppandinn í ár en hún keppir í skíðagöngu, fyrst íslenskra kvenna á vetrar Paralympics. Fyrst keppir Arna í sprettgöngu þriðjudaginn 10. mars og svo í 10 kílómetra göngu degi síðar, 11. mars. RÚV sýnir beint frá báðum keppnum.

Hún er 35 ára gömul og er lömuð fyrir neðan mitti eftir að hafa hryggbrotnað í alvarlegu skíðaslysi undir lok árs 2006, þá aðeins 16 ára gömul. Arna er í þann mund að brjóta blað í íslenskri íþrótta- og ólympíusögu þar sem hún verður fyrsta íslenska konan sem afrekar það að taka þátt á bæði vetrar og sumar Paralympics.

„Það er mjög góð tilfinning og mikill heiður. Mér finnst ég svolítið heppin. Þetta er mjög skemmtilegt,“ segir Arna um afrekið. Hún er einungis fimmti Íslendingurinn sem tekur þátt á Vetrar Paralympics og viðurkennir líkt og sá sem þetta ritar að sú tala hafi komið á óvart.

„Ég upplifi það sama og þú. Það er enginn búinn að vera í skíðagöngu áður á Paralympics. Ég hélt að það hefðu verið fleiri í alpagreinum en það er greinilega ekki, af því að það var búið að fara á Vetrarólympíuleikana í mörg, mörg ár.

Það kom mér smá á óvart eins og þér að það séu þetta fáir búnir að fara. Það er auðvitað ótrúlega gaman að geta kynnt nýja íþrótt heima á Íslandi,“ segir Arna glaðbeitt.

Keppnistímar Örnu Sigríðar á Paralympics

Hugsað sem hobbí eða æfing

Hún hafði getið sér góðs orðs í handahjólreiðum og keppti fyrst Íslendinga í þeirri grein á Paralympics í Tókýó árið 2021. Skíði voru stór hluti af æsku Örnu en spurð hvenær hún hafi byrjað að æfa skíði á nýjan leik segir Arna:

„Ég held að ég hafi fengið skíðastól 2021 en ég er eiginlega ekkert búin að vera að æfa nema kannski síðasta árið. Ég var í hjólreiðum á þessum tíma og þetta var svolítið hugsað sem hobbí eða æfing á veturna. 

Af því að það er náttúrlega erfitt að komast um í hjólastól í snjó. Hjólreiðarnar og skíðagangan eru báðar úthaldsgreinar þannig að ég hugsaði að það væri gott tæki til að æfa á veturna og fá að komast aðeins út.“

Erfitt að vera algjör byrjandi á nýjan leik

Eftir slysið árið 2006 reyndist það henni erfitt að fara aftur á skíði.

„Já, það var það alveg. Þegar ég slasast… ég man ekki eftir slysinu mínu, sem hefur örugglega alveg hjálpað en auðvitað er það alltaf smá erfitt. Ég hafði verið á skíðum síðan ég var tveggja ára og hafði einhvern veginn alltaf getað skíðað. 

Það að vera byrjandi aftur fannst mér eiginlega erfiðast. Ég byrjaði að fara á svigskíði nokkrum árum eftir slys og það gekk ekki vel. Það var svolítið erfitt. Að vera aftur algjör byrjandi var erfitt,“ útskýrir Arna einlæglega.

Varstu efnileg skíðakona á árum áður?

„Kannski bara meðal, ég var ekki í einhverju landsliði eða neitt svoleiðis. Ég var ennþá að æfa þegar ég var 16 ára. Brottfall úr íþróttinni er svolítið mikið þarna 13-14 ára vegna þess að það verður aðeins meiri alvara þarna í kringum 15-16 ára aldur,“ segir Arna.

Skíðaganga og hjólreiðar eiga vel saman

Hún æfir áfram handahjólreiðar en eins og gefur að skilja leggur Arna nú aukna áherslu á skíðagönguna.

„Ég er búin að vera í hjólreiðum síðustu ár og búin að æfa mikið. Núna er ég svolítið að færa fókusinn á skíðagöngu og er búin að gera það síðasta árið, að vera með skíðagönguna númer eitt. En hjólreiðarnar eru mjög góðar með.“

Spurð hvernig gangi að samtvinna skíðagöngu og handahjólreiðar segir hún:

„Ég er ekki búin að vera að keppa á mörgum stórum alþjóðlegum mótum í hjólreiðum síðasta árið en þetta eru bæði úthaldsíþróttir og ég held að það sé mjög gott að geta breytt aðeins til. Það er líka gaman að komast út allan ársins hring, að geta verið úti að skíða á veturna og úti að hjóla á sumrin.

Ég held að þetta eigi svolítið vel saman. Skíðagangan er svolítið krefjandi. Þetta er erfið íþrótt, hún er svolítið erfið fyrir líkamann. Þá er mjög gott að geta hjólað inni á milli, það fer kannski aðeins betur með mann og það er auðveldara að ná löngum æfingum á hjólinu.“

Einungis búin að æfa íþróttina síðastliðið ár

Arna dvaldi nýverið um nokkurra vikna skeið í Noregi þar sem hún undirbjó sig af kappi fyrir vetrar Paralympics.

„Það gekk mjög vel í Noregi.  Ég var á stað sem heitir Beitostølen sem ég er búin að vera oft áður á. Það eru frábærar aðstæður þar. Það var mjög gott að vera þar og gekk fínt að æfa,“ segir Arna, sem hélt svo til Pedrazzo á Ítalíu ásamt íslenska teyminu á mánudag.

„Það fer mjög vel um okkur. Ég er ánægð með allt hérna, aðgengið og skipulagið virðist vera gott. Þetta er kannski ekki svona Ólympíuþorps fílingur því það er bara fólk sem er í skíðagöngu og skíðaskotfimi sem er hérna á þessu svæði.

Ég hef aldrei farið á stór skíðagöngumót en þetta er örugglega meira eins og heimsbikarmót heldur en kannski Ólympíuleikar. Það finnst örugglega mörgum. En mér finnst það bara mjög fínt. Þá kannski kynnist maður fólkinu betur sem er í greininni,“ segir hún.

Ertu með einhverjar ákveðnar væntingar fyrir keppnirnar í sprettgöngu og 10 km göngu?

„Nei, ég er með frekar hóflegar væntingar þar sem ég er bara búin að æfa þessa íþrótt síðastliðið ár. Þá er kannski ekki alveg eðlilegt að setja sér einhver háleit markmið eða væntingar. En auðvitað er það bara að gera sitt besta og það hefur gengið vel að æfa,“ segir Arna Sigríður Albertsdóttir fyrir sína fyrstu vetrar Paralympics.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Agnes Lovísa og Anna Karen Íslandsmeistarar í tvíliðaleik U15

Helgina 28. febrúar – 1. mars fór fram Íslandsmót unglinga í borðtennis á Selfossi. …