Helgina 28. febrúar – 1. mars fór fram Íslandsmót unglinga í borðtennis á Selfossi. Mótið var haldið í fyrsta sinn á Selfossi þar sem 130 keppendur tóku þátt frá 15 félögum. Á mótinu var leikið um 17 Íslandsmeistaratitla – 8 í einliðaleik, 6 í tvíliðaleik og 3 í tvenndarleik.
ÍFR mætti með 3 keppendur á mótið en það voru þau Agnes Lovísa, Anna Karen og Björgvin Arnar. Hópurinn átti frábært mót þar sem Stelpurnar unnu hvora um sig silfurverðlaun og Björgvin bronsverðlaun í sínum aldursflokkum í einliðaleik. Agnes Lovísa og Anna karen tóku einnig þátt í tvíliðaleik meyja U15. Stelpurnar spiluðu frábærlega og enduðu sem Íslandsmeistarar í tvíliðaleik meyja U15.
Mikill uppgangur hefur verið í borðtennis undanfarin ár eins og sjá má á fjölda keppenda sem tóku þátt á mótinu um helgina. ÍFR hefur vakið athygli fyrir fjölgun iðkenda hjá félaginu og er nú að uppskera afraksturinn.
Næst á dagskrá er Íslandsmót ÍF í borðtennis sem fer fram á laugardaginn, 7. mars. Mótið fer fram í íþróttahúsi ÍFR þar sem keppni hefst kl 13:00.

