Heim 1. tbl. 2026 Guðfinnur bikarmeistari 16 ár í röð – vonast til þess að vinna við tónlist í framtíðinni

Guðfinnur bikarmeistari 16 ár í röð – vonast til þess að vinna við tónlist í framtíðinni

11 min read
Slökkt á athugasemdum við Guðfinnur bikarmeistari 16 ár í röð – vonast til þess að vinna við tónlist í framtíðinni
2
437

Viðtal/ Gunnar Egill Daníelsson

„Ég hef ekki misst af bikarmóti sem ég man eftir,“ segir Guðfinnur Vilhelm Karlsson, sem hefur unnið það einstæða afrek að verða bikarmeistari með Íþróttafélaginu Firði á Flokka- og bikarmóti ÍF í sundi síðustu 16 ár í röð. Guðfinnur er 37 ára gamall sundmaður sem fæddist blindur.

„Það var rosalega gaman fyrstu árin. Á tímabili vorum við yfirleitt síðasta félagið en svo gerðist eitthvað. Hópurinn sviptist, einhverjum útreikningum var breytt og þá gátum við farið að vinna. En það er alltaf gaman að vinna og taka þátt í þessu.

Maður gerir það sem maður þarf fyrir félagið og auðvitað fær maður alltaf eitthvað út úr því að fá verðlaunin þegar maður er að gera þetta,“ segir hann um hvernig það sé nú eiginlega að hafa orðið bikarmeistari með Firði undanfarin 16 ár.

Veistu hvort þetta sé met hjá einstaklingi, að vera hluti af bikarmeistaraliði 16 sinnum í röð?

„Ég hef bara ekki pælt í því. Hjörtur [Már Ingvarsson] sem var líka í landsliðinu gæti verið með jafn marga bikartitla. Það er ekki algengt að fólk endist svona lengi í sundi eins og ég. Ég gæti trúað því að í sundinu séu það allavega ekki margir.

Ég hef bara tekið eitt mót í einu og ekkert verið að spá í þetta. En jú auðvitað höfum við talað um hvað við höfum unnið oft,“ segir Guðfinnur og bætir við að stefnan sé vitanlega sett á 17. bikartitilinn í röð á mótinu í næsta mánuði.

Auðvitað! Ég geri það sem ég get til þess. Þetta er auðvitað líka spurning um það hvað hópurinn er sterkur. Við höfum verið með það sterkan hóp hingað til, það hefur gengið vel hjá okkur að halda í fólk.“

Krækti í silfur á Special Olympics HM í kraftlyftingum

Hann er ekki við eina fjölina felldur og hefur einnig keppt í kraftlyftingum. Guðfinnur gerði sér raunar lítið fyrir og vann til silfurverðlauna í sínum flokki, -93 kg, á Special Olympics heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum árið 2024. Spurður hvort hann sé enn að keppa í kraftlyftingum segir Guðfinnur:

„Nei, Ég var bara eitthvað að leika mér fyrir nokkrum árum. Ég náði ekki því lágmarki í sundinu sem ég hafði ætlað að ná og kraftlyftingamótið var ekki haldið á sama tíma og Íslandsmótið í sundi þannig að ég ákvað að taka þátt.

Svo var ég valinn í Special Olympics HM-liðið á Íslandi. Það kom held ég öllum á óvart. Sú sem stjórnaði því valdi mig í liðið út frá því sem ég hafði sýnt á þessu móti. Ég er ennþá að æfa í ræktinni til hliðar við sundið og einhverjar lyftur erum við að gera, þó það sé meira útpælt fyrir sundið, allavega hlutar af æfingunni.“

Hann útilokar þó ekki að keppa aftur í kraftlyftingum.

„Ég er ennþá að lyfta  en oftast, til dæmis í fyrra, var Íslandsmótið í sundi á sama tíma og kraftlyftingamótið. Það hefði svo sem ekki skipt máli hvort mótið ég hefði valið af því að ég fór veikur heim í upphitun af Íslandsmótinu í fyrra!

Þessi tvö mót áttu að fara fram á sama tíma en svo skildist mér að það hefðu verið einhver húsnæðisvandamál hjá kraftlyftingamótinu þannig að það er spurning hvort ég verði aftur núna.

Ég hef ekki verið að æfa í lyftingahópnum undanfarið eftir þetta HM ævintýri en það var gaman að prófa þetta. Það kemur náttúrlega endapunktur á sundinu einhvern tímann, líka þegar maður hefur minni tíma. Þá getur verið gaman að fara í þetta,“ útskýrir Guðfinnur.

Ennþá skemmtilegast í sundinu

Þá liggur beinast við að spyrja hvort hann sé í fleiri íþróttum og/eða geti hugsað sér að prófa einhverjar fleiri.

„Ég held að það sé bara helst þetta. Sá sem var að þjálfa kraftlyftingar í Firði er einmitt að þjálfa mig í ræktinni. Hann er að stjórna þessum lyftingum hjá Firði og hefur alltaf verið að reyna að fá mig til að prófa kúluvarp í frjálsum íþróttum. Ég hef ekki gert það ennþá og veit ekki hvort það sé gaman,“ segir Guðfinnur.

Sund- og kraftlyftingakappinn er um leið sprenglærður í tónlist, hefur lært á bæði píanó og fiðlu, og vonast síðar meir til þess að geta haft atvinnu af því að spila tónlist

„Já, ég er búinn að klára klassískt nám í tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Svo var ég eitthvað smá stefnulaus og ákvað að bæta bara við mig í djasspíanói í FÍH. Í fyrra var ég í áföngum sem voru haldnir í samstarfi við Ford School of Music háskólann. Phil Doyle var að kenna þar.

Núna er ég bara í djasspíanóinu og er svolítið í samspilshópum, að læra að spila með öðrum. Stefnan er að klára þetta og þá er ég með bæði píanó í klassík og djassi og náttúrlega með fiðluna líka. Þá get ég kannski unnið við tónlist í framtíðinni, þegar ég er búinn með þetta. Það er allavega planið.“

Hvað af þessu öllu finnst þér skemmtilegast að gera?

„Ég held að sundið sé ennþá með vinninginn. Þó að þetta tímabil hafi sennilega verið það sísta í langan tíma hjá mér þá hef ég ennþá gaman af því. Ef ég þyrfti að velja eitthvað væri það sundið.

En þegar maður er orðinn 38 ára gamall fer að styttast í endann á þessu. Á einhverjum tímapunkti segir líkaminn nei og þá er gott að geta gert eitthvað meira,“ segir Guðfinnur Vilhelm Karlsson, sem fagnar 38 ára afmæli í nóvember.

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Svanur er öðlingur ársins: „Fannst notalegt að þeim skyldi detta þetta í hug“

Svanur Ingvarsson lamaðist fyrir neðan mitti í vinnuslysi aðeins 26 ára gamall. Á yngri ár…