Heim 1. tbl. 2026 Róbert í 4. sæti á World Series í París

Róbert í 4. sæti á World Series í París

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Róbert í 4. sæti á World Series í París
11
315

Dagana 1.–3. maí fór fram World Series mót í sundi í París, en þetta er í fjórða sinn sem mótið er haldið.

Róbert keppti þar í 100 metra bringusundi og 100 metra flugsundi. Hann hóf keppni föstudaginn 1. maí í undanrásum í 100 metra bringusundi, þar sem hann synti á tímanum 1:11,19 og varð fimmti inn í úrslit. Úrslitin fóru fram á laugardeginum og þar hafnaði hann í fjórða sæti á tímanum 1:10,92.

Sunnudaginn 3. maí keppti Róbert í undanrásum í 100 metra flugsundi. Þar synti hann á tímanum 1:01,23 og komst þriðji í úrslit. Úrslitin fóru fram síðar sama dag og endaði hann í sjötta sæti á tímanum 1:00,87.

Næst á dagskrá er World Series mót í Berlín dagana 8.–9. maí. Þar mun Róbert keppa ásamt Sonju Sigurðardóttur og Thelmu Björgu Björnsdóttur. Hópurinn er þegar kominn til Berlínar, þar sem hann mun æfa fram að mótinu.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum fer fram 6. júní

Laugardaginn 6. júní fer fram Íslandsmeistaramótið í Kraftlyftingum. Mótið mun fara fram í…