Heim 1. tbl. 2026 Frjálsíþróttafjör í Kaplakrika

Frjálsíþróttafjör í Kaplakrika

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Frjálsíþróttafjör í Kaplakrika
0
115

Sunnudaginn 15. mars fóru fram Íslandsleikar Special Olympics í frjálsum innanhúss. Mótið var haldið í frjálsíþróttahöllinni í kaplakrika þar sem keppt var í kúluvarpi, langstökki 60m og 400m hlaupi. Mikil stemning var í höllinni og mörg persónuleg met féllu hjá keppendum.

Á mótinu fór einnig fram sýningargrein í kúluvarpi fyrir sitjandi flokka. Þar voru mættir til leiks Valdimar Númi, Johnny, Hrólfur Geir og Sigurjón Ægir. Þeir köstuðu allir úr kaststól sem var gerður fyrir Suðra. Þetta er því í annað sinn sem keppt er í kúluvarpi úr þessum kaststól.

Við mótslok fóru keppendur upp á verðlaunapall og tóku á móti verðlaunum fyrir þáttöku á mótinu.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Skráning er hafin á Íslandsmeistaramót í Kraftlyftingum

Laugardaginn 28. mars fer fram Íslandsmeistaramót í kraftlyftingum fatlaðra. Að þessu sinn…