Heim 1. tbl. 2026 40 ára afmælisár UMF Selfoss Suðra

40 ára afmælisár UMF Selfoss Suðra

5 min read
Slökkt á athugasemdum við 40 ára afmælisár UMF Selfoss Suðra
0
64

Fimmtudaginn 5. haldinn aðalfundur UMF Selfoss Suðra sem nú fagnar 40 ára afmælisári.

40 ára starf íþróttafélagsins Suðra á Selfossi hefur gefið mörgum skemmtileg tækifæri til þátttöku í íþróttastarfi og keppni innanlands og erlendis.

Á Selfossi var stigið mikilvægt skref í samstarfi við verkefnið ,,ALLIR MEГ þegar ákveðið var að starf Suðra skyldi tengjast beint starfi Umf Selfoss.

Íþróttafélagið ber í  dag heitið,  UMF Selfoss Suðri eða Selfoss Suðri og þetta samstarf er gríðarlega spennandi og verður áhugavert að fylgjast með hvaða ávinningi það skilar fyrir alla aðila.

Fundarstjóri var  reynsluboltinn Svanur Ingvarsson sem hélt vel utan um fundinn, þar sem bæði var  formleg dagskrá og afmæliskaffi fyrir gesti.

Á fundinum var Ófeigur Ágúst Leifsson, endurkjörinn formaður en hann og  kona hans Þórdís Bjarnadóttir hafa lagt hjarta og sál í starf félagsins undanfarin ár.  

Þórdís ákvað að stíga út úr stjórn en mun án efa halda áfram að leggja sitt lóð á vogarskálarnar. Hún fær innilegar þakkir fyrir ómetanlegt starf  og frábært samstarf.

Fundarsókn var mjög góð en alls var um 50% félaga mætt á fundinn eins og virðist vera venja hjá þessu félagi sem byggt hefur upp mikla og góða samkennd meðal iðkenda og þjálfara.

Skýrslur voru lagðar fram frá þjálfurum í ólíkum greinum og ljóst að starfið er öflugt og fjölmörg tilboð til staðar og enn verið að bæta í gegnum verkefnið „ALLIR MEГ

Á fundinum voru afhentar viðurkenningar til íþróttakonu og karls ársins en það voru þau Sigurjón Ægir og María Sigurjónsdóttir sem hlutu viðurkenninguna.

Helgi Haraldsson formaður UMF Selfoss, flutti ávarp, fagnaði nýju samstarfi sem miklar væntingar eru bundnar við og þakkaði gott samstarf.

Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Special Olympics og Þróunarsviðs ÍF var fulltrúi ÍF á fundinum og færði blóm og kveðju til félagsins frá stjórn ÍF.

Hún þakkaði UMF Selfoss fyrir mikilvægt brautryðjendastarf og forsvarsfólki, þjálfurum og iðkendum Suðra fyrir frábært samstarf gegnum árin.

Stór viðburður verður í haust í tengslum við 40 ára afmælisár félagsins þegar félagið tekur að sér umsjón Íslandsmóts ÍF í boccia, einstaklingskeppni í október.

Til hamingju með 40 árin og takk fyrir áralangt samstarf.

Í tengslum við fundinn var tekið viðtal við Kötlu Sif Ægisdóttur sem æfir sund og  boccia

Sækja skyldar greinar
Load More By Anna Karólína Vilhjálmsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Glæsilegt mót í Miðgarði á vegum Stjörnunar og Aspar

Fulltrúar Stjörnunnar og Aspar í  samstarfi við Special Olympics á Íslandi stóðu fyri…