Heim 1. tbl. 2026 ÍFR með Íslandsmeistara í 7 af 9 keppnisflokkum

ÍFR með Íslandsmeistara í 7 af 9 keppnisflokkum

2 min read
Slökkt á athugasemdum við ÍFR með Íslandsmeistara í 7 af 9 keppnisflokkum
0
148

Íslandsmótið ÍF í borðtennis fór fram laugardaginn 7. mars í íþróttahúsi ÍFR. Alls tóku 27 keppendur þátt, 17 karlar og 10 konur.

Lið ÍFR var fjölmennt á mótinu og unnu Íslandsmeistaratitil í 7 af 9 flokkum. Björgvin Ingi Ólafsson (HK) mætti einnig til leiks og sigraði í flokki 6–10, opnum flokki karla og í tvíliðaleik karla ásamt Björgvini Arnari (ÍFR).

Anna Karen Malmquist sigraði opna flokk kvenna; hún var jafnframt yngst keppenda á mótinu. Anna Karen er nýkrýndur Íslandsmeistari í tvíliðaleik meyja U15 ófatlaðra ásamt Agnesi Lovísu.

Íslandsmeistarar 2026

  • Flokkur 11 kk: Óskar Kemp, ÍFR
  • Flokkur 11 kvk: Soffía Rúna Jensdóttir, ÍFR
  • Flokkur 1–5: Hákon Atli Bjarkason, ÍFR
  • Flokkur 6–10: Björgvin Ingi Ólafsson, HK
  • Opinn flokkur kk: Björgvin Ingi Ólafsson, HK
  • Opinn flokkur kvk: Anna Karen Malmquist, ÍFR
  • Tvíliðaleikur kk: Björgvin Arnar Arnarsson (ÍFR) og Björgvin Ingi Ólafsson (HK)
  • Tvíliðaleikur kvk: Jóna Kristín Erlendsdóttir og Valgerður Jónsdóttir, ÍFR
  • Tvenndarleikur: Hákon Atli Bjarkason og Jóna Kristín Erlendsdóttir, ÍFR

Hægt er að skoða úrslit mótsins hér.

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Arna Sigríður brýtur blað í íslenskri íþrótta- og ólympíusögu: „Finnst ég svolítið heppin“

Vetrar Paralympics í Mílanó og Cortina á Ítalíu verða settir í kvöld og standa leikarnir y…