Heim 1. tbl. 2026 Paralympic eldurinn lýsti upp opnunarhátíðina í Verona

Paralympic eldurinn lýsti upp opnunarhátíðina í Verona

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Paralympic eldurinn lýsti upp opnunarhátíðina í Verona
1
74

Opnunarhátíð Paralympics vetrarleikanna Mílanó og Cortina 2026 fór fram í gærkvöldi í Arena Di Verona, þar sem Paralympic eldurinn var kveiktur og leikarnir þar með formlega settir.

Í aðdraganda opnunarhátíðarinnar fór fram sérstaök athöfn í Cortina d‘Ampezzo þar sem fimm logar sem kveiktir höfðu verið á svokölluðum Flame Festival hátíðum í Tórínó, Mílanó, Bolzano, Trento og Trieste voru sameinaðir í einn Paralympic eld. Eldurinn varð síðan miðpunkturinn sem ferðaðist um Ítalíu áður en hann kom til Verona fyrir opnunarhátíðina. Meðal þátttakenda í kyndilgöngunni voru meðal annars Andrew Parson, forseti IPC auk íþróttafólks og annarra fulltrúa Paralympics hreyfingarinnar, alls tóku 501 kyndilberi þátt í ferð eldsins.

Paralympic eldurinn var upphaflega kveiktur 24. febrúar í Stoke Mandeville í Bretlandi sem talinn er fæðingarstaður Paralympic hreyfingarinnar.

Paralympics Mílanó og Cortina fara fram 6. mars til 15. mars. Þar keppa yfir 600 íþróttafólk frá um 50 þjóðum um verðlaun í 79 greinum í sex íþróttagreinum.

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Arna Albertsdóttir fánaberi Íslands

Alls eru 56 þjóðir sem taka þátt í Vetrar Paralympics 2026. Fánaberi Íslands var engin ann…