Heim 1. tbl. 2026 Arna Albertsdóttir fánaberi Íslands

Arna Albertsdóttir fánaberi Íslands

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Arna Albertsdóttir fánaberi Íslands
1
244

Alls eru 56 þjóðir sem taka þátt í Vetrar Paralympics 2026. Fánaberi Íslands var engin annar en hún Arna Sigríður Albertsdóttir og var hún númer 27 í inngönguröð þjóðanna á opnunarhátíðinni.

Það voru ekki allir sem höfðu kost á því að vera viðstaddir opnunarhátíðina í Verona og voru það þess vegna sjálfboðaliðar sem sáu um að bera þjóðfána landanna á meðan skrúðgangan fór fram. Allir fánaberar þjóðanna komu þó fram í stuttum myndböndum sem voru sýnd á meðan skrúðgöngunni stóð.

Arna keppir fyrir Íslands hönd í skíðagöngu og er hún fyrst íslenskra kvenna sem tekur þátt í bæði vetrar og sumar Paralympics. Arna mun hefja keppni 10. mars og verður gangan sýnd í beinni á RÚV.

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Paralympic eldurinn lýsti upp opnunarhátíðina í Verona

Opnunarhátíð Paralympics vetrarleikanna Mílanó og Cortina 2026 fór fram í gærkvöldi í Aren…