Heim 1. tbl. 2026 Glæsilegt mót í Miðgarði á vegum Stjörnunar og Aspar

Glæsilegt mót í Miðgarði á vegum Stjörnunar og Aspar

5 min read
Slökkt á athugasemdum við Glæsilegt mót í Miðgarði á vegum Stjörnunar og Aspar
1
357

Fulltrúar Stjörnunnar og Aspar í  samstarfi við Special Olympics á Íslandi stóðu fyrir glæsilegu knattspyrnumóti í Miðgarði sunnudaginn 1. mars 2026.  Félögin hafa áður staðið að hefðbundnu knattspyrnumóti en það sem var  sérstakt við þetta mót er að byggt var á reglum  Special Olympics Unified, þar sem fatlaðir og ófatlaðir iðkendur spila saman í einum hópi með áherslu á jafnræði, liðsheild og gleði. Á mótið mættu til leiks um 100 þátttakendur frá hinum ýmsu liðum, m.a. komu keppendur frá Selfossi. Það mátti sjá skemmtileg tilþrif og keppni var að sjálfsögðu hörð en fyrst og fremst var um að ræða gagnkvæma virðingu, góða samvinnu, sterka liðsheild og einlæga gleði.  Þetta mót var ekki aðeins keppni heldur einnig mikilvægur samfélagsviðburður og fjáröflun, en stór hluti hópsins heldur til Danmerkur í lok maí til þátttöku á Special Olympics Festival sem er haldið annað hvert ár í Danmörku. Veglegar veitingar voru til sölu og en einnig verður safnað áheitum til að styðja við ferðina. Það var sérlega gaman að sjá áhuga unga fólksins, fulltrúa knattpspyrnudeilda Stjörnunnar sem tóku þátt bæði sem „unified“ keppendur og aðstoðarfólk þjálfara á mótinu. 

Í mótslok fengu allir verðlaunapening en það voru landsliðskonur úr  U19 og fulltrúar Lionshreyfingarinnar sem afhentu verðlaunin.

Alþjóða lionshreyfingin tengist styrk sem Special Olympics á Íslandi hefur fengið til útbreiðslu „unified“ verkefna og þetta mót var styrkt gegnum þetta mikilvæga samstarf. 

Fulltrúar lionsklúbba á Íslandi hafa tekið virkan þátt og aðstoðað við þau verkefni sem styrkt hafa verið.

Á mótinu fór fram fallegur viðburður þar sem Skúli Steinar Pétursson var heiðraður sérstaklega en hann hefur tekið virkan þátt í knattspyrnuæfingum en er nú að glíma við erfið veikindi.

Sameiginlegt fótboltalið Stjörnunnar og Asparinnar hefur  verið í gangi í nokkur ár og um 50 iðkendur á öllum aldri æfa með liðinu. Elfa B Erlingsdóttir ein af þjálfurum liðsins segir framfarirnar hafa verið ótrúlegar.

og að eins og hjá öðrum liðum vilji allir fá að keppa. Hún segir stefnt að því að halda svona mót árlega og dreymir um að það muni eflast með hverju ári. 

Special Olympics á Íslandi óskar forsvarsfólki knattspyrnstarfs Stjörnunnar og Aspar til hamingju með glæsilegt mót og þakkar öllum þeim sem á einn eða annan hátt komu að aðstoð við mótið. 

Stjarnan og Öspin hafa unnið mikilvægt brautryðjendastarf með samstarfsverkefninu um uppbyggingu knattspyrnu fyrir alla og starfið mun án efa halda áfram að blómstra undir stjórn metnaðarfullra þjálfara. 

Sækja skyldar greinar
Load More By Anna Karólína Vilhjálmsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

40 ára afmælisár UMF Selfoss Suðra

Fimmtudaginn 5. haldinn aðalfundur UMF Selfoss Suðra sem nú fagnar 40 ára afmælisári. 40 á…