Heim 1. tbl. 2026 Arna Sigríður verður fyrst íslenskra kvenna í skiðagöngu Vetrar Paralympics

Arna Sigríður verður fyrst íslenskra kvenna í skiðagöngu Vetrar Paralympics

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Arna Sigríður verður fyrst íslenskra kvenna í skiðagöngu Vetrar Paralympics
2
1,155

Nú þegar Vetrarólympíuleikarnir eru enn í fullum skrúða var Íslandi að berast frábær tíðindi en Arna Sigríður Albertsdóttir hefur hlotið þátttökurétt á Vetrar Paralympics í skíðagöngu en leikarnir fara fram dagana 6.-15. mars næstkomandi.

Eins og flestum er kunnugt fara Ólympíuleikar og Paralympics fram við sömu aðstæður í sama landi enda orðið hluti af einu og sama útboðinu þegar kemur að því að velja gestgjafaþjóðir leikanna.

Arna Sigríður verður þar með fyrst íslenskra kvenna til að keppa í skíðagöngu á Vetrar Paralympics og líka fyrst íslenskra kvenna til að taka bæði þátt í sumar og vetrar Paralympics! Arna var fulltrúi Íslands á Paralympics í handahjólreiðum sem fram fóru í Tokyo 2020 (2021).

Íþróttasamband fatlaðra óskar Örnu Sigríði innilega til hamingju með keppnissætið á leikunum en hún er einmitt stödd í Noregi núna við æfingar og undirbúning.

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Svanur heiðraður á héraðsþingi HSK

Fyrrum Paralympics keppandinn Svanur Ingvarsson var nýverið heiðraður á 104. héraðsþingi H…